Staðnámskeið

Microsoft Power BI

Verð 67.000 kr.
Aðeins 7 sæti laus

Mán. 6. og mið. 8. maí. kl. 8:30 - 12:30

8 klst.

Ásgeir Gunnarsson, viðskipta- og tölvunarfræðingur og ráðgjafi hjá North Insights

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Hvað er Power BI? Power BI er ný þjónusta frá Microsoft þar sem hægt er að sækja gögn frá mörgum mismunandi gagnalindum, greina þau og deila með öðrum. Á námskeiðinu er fjallað um hvað Power BI er ásamt því hvernig mælaborð eru byggð upp í Power BI Desktop.

Áhersla er lögð á vinnslu hagnýtra verkefna í gegnum allt námskeiðið og þátttakendur setja efni námskeiðsins í samhengi við þeirra daglegu störf.

Farið er í hvernig gögn eru tekin inn og hvernig þau eru sett fram á fjölbreyttan og stílhreinan máta. Einnig er skoðað hvernig hægt er að vinna með sameiginleg gögn og skoða þau á farsímum/spjaldtölvum.

Power BI kemur í tveimur útgáfum, ókeypis og greiddri útgáfu. Notast verður við ókeypis útgáfuna á námskeiðinu þannig að ekki er þörf á því að kaupa aðgang vegna þess.
Nánari upplýsingar um Power BI er að finna hér Power BI.

Á námskeiðinu er fjallað um

Uppsetningu gagna í Power BI Desktop
Innlestur gagna á mismunandi formi
Hreinsun gagna
Vinnu með gögn
Vensl og aðrar stilling
Skýrslugerð í Power BI
Töflur og gröf.
Landakort.
Tengsl á milli grafa/korta.
Síur.
Mælaborð í Power BI
Samsetningu á mælaborði.
Hvernig bæta á við mælaborð.
Samvinna í Power BI
Hvernig deila á greiningum og mælaborðum.
Power BI á farsímum/spjaldtölvum
Hvernig hægt er að nota Power BI greiningar á spjaldtölvum/farsímum.

Ávinningur þinn

Kynnast Power BI lausn Microsoft.
Geta greint talsvert magn gagna hratt, tengt saman aðskilin gagnamengi og sett þau fram á skiljanlegan hátt.
Nýta sjálfvirkni til að flýta fyrir endurteknum verkefnum.
Skýrslugerð.
Ná í og vinna með gögn sem annars er erfitt að sækja.
Læra hvað er hægt að gera í Power BI og að hjálpa þér sjálf(ur).
Sjá hvernig hægt er að nota mælaborð og greiningar á spjaldtölvum/farsímum.
Setja þá möguleika sem Power BI hefur upp á að bjóða í samhengi við þín daglegu störf og verkefni.

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja kynnast Power BI sem lausn fyrir mælaborð og skýrslugerð auk þeirra sem vilja vera meira sjálfbjarga með gagnavinnslu og framsetningu. Gerð er krafa um að þátttakendur hafi unnið með gögn og gagnaframsetningu eða hafi brennandi áhuga á að byrja á því.

Nánar um kennara

Ásgeir Gunnarsson, viðskipta- og tölvunarfræðingur og ráðgjafi hjá North Insights. Ásgeir er með yfir 10 ára reynslu af viðskiptagreind og tölvukennslu. Hann hefur notað Power BI og Power Query frá því að það var gefið út og hefur kennt námskeið í Endurmenntun síðan 2014.

Aðrar upplýsingar

Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur og hafi sett upp Microsoft Power BI Desktop.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Microsoft Power BI

Verð
67000

<span class="fm-plan">Hva&eth; er Power BI? Power BI er n&yacute; &thorn;j&oacute;nusta fr&aacute; Microsoft &thorn;ar sem h&aelig;gt er a&eth; s&aelig;kja g&ouml;gn fr&aacute; m&ouml;rgum mismunandi gagnalindum, greina &thorn;au og deila me&eth; &ouml;&eth;rum. &Aacute; n&aacute;mskei&eth;inu er fjalla&eth; um hva&eth; Power BI er &aacute;samt &thorn;v&iacute; hvernig m&aelig;labor&eth; eru bygg&eth; upp &iacute; Power BI Desktop.</span>