Staðnámskeið

Skattlagning milli landa

- tekjuskattur, útsvar og persónuafsláttur
Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 16. september
Almennt verð 32.900 kr. 29.900 kr.

Fim. 26. sept. kl. 9.00 - 12.00

3 klst.

Vala Valtýsdóttir, lögfræðingur og meðeigandi Lögfræðistofu Reykjavíkur

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Það getur stundum verið erfitt að átta sig á þeim tekjuskattsreglum sem gilda þegar einstaklingar og félög fá tekjur sem aflað er á erlendum vettvangi.

Á þessu námskeiði verður farið yfir þær meginreglur sem gilda þegar um millilandaviðskipti er að ræða og þegar einstaklingar eru með tekjur í fleiri en einu landi.

Á námskeiðinu er fjallað um

Ótakmarkaða skattskyldu.
Takmarkaða skattskyldu.
Frádrátt og uppgjör skatts.
Tvísköttun.

Ávinningur þinn

Aukin þekking á þeim skattareglum sem gilda milli landa.

Fyrir hverja

Fyrir viðurkennda bókara og aðra sem sjá um bókhald fyrirtækja.

Nánar um kennara

Vala Valtýsdóttir er lögmaður og er sérfræðingur á sviði skattamála. Hún hefur unnið bæði hjá skattyfirvöldum, lögmannsstofum og endurskoðunarstofum. Hún starfar nú sem lögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, kennir nokkur námskeið hjá Endurmenntun HÍ og er stundakennari við Háskólann á Bifröst í skattarétti.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Skattlagning milli landa

Verð
32900

<span class="fm-plan">&THORN;a&eth; getur stundum veri&eth; erfitt a&eth; &aacute;tta sig &aacute; &thorn;eim tekjuskattsreglum sem gilda &thorn;egar einstaklingar og f&eacute;l&ouml;g f&aacute; tekjur sem afla&eth; er &aacute; erlendum vettvangi.</span>