Staðnámskeið

Mótaðu framtíðina með sviðsmyndagreiningum

- skapaðu þér og þínu fyrirtæki ný tækifæri
Verð 57.100 kr.
Í gangi

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Fim. 18. apríl kl. 13:00 - 16:00 og fös. 19. apríl kl. 9:00 - 12:00 (2x)

6 klst.

Karl Friðriksson, stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands og Sævar Kristinsson, rekstrar- og stjórnendaráðgjafi á ráðgjafarsviði KPMG.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Sérhver ákvörðun sem tekin er í dag hefur áhrif á framtíðina. Á það jafnt við hvort sem hún er tekin af einstaklingi eða af starfsmönnum fyrirtækja eða stofnana. Því er rökrétt að skoða og reyna að skilja þá áhrifaþætti sem skipta máli við ákvarðanatökuna áður en til hennar kemur.

Framtíðin verður ekki eins og fortíðin og því skiptir máli að kunna skil á þeim aðferðum sem mest eru notaðar í heiminum í dag til að horfa með faglegum og markvissum hætti til framtíðar. Meðal þeirra eru greining drifkrafta og sviðsmyndir.

Fyrri hluti námskeiðsins fjallar um það hvernig þú getur mótað eigin framtíð með því að nýta  framtíðarhugsun og kynnast framtíðarlæsi. Þátttakendur kynnast ólíkum aðferðum til að greina framtíðartækifæri og byggja upp færni og getu til að takast á við áður óþekktar áskoranir í lífi og starfi.
Í seinni hluta námskeiðsins er fjallað um mótun sviðsmynda og notkun þeirra sem og hagnýtt gildi fyrir ólík svið rekstrar og stjórnunar í fyrirtækjum og stofnunum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu í mótun sviðsmynda og notkun þeirra í stjórnun og rekstri.

Á námskeiðinu er fjallað um

Framtíðarlæsi.
Mótun sviðsmynda.
Notkun sviðsmynda í stjórnun og rekstri.
Framtíðarfræði almennt og greiningu drifkrafta og óvissuþátta sem leggja grunn að sviðsmyndagreiningu.
Mótun sviðsmynda, notkun þeirra og hagnýti fyrir ólík svið rekstrar og stjórnunar.

Ávinningur þinn

Öðlast færni til að nýta framtíðaráskoranir í lífi og starfi.
Skilningur á drifkröftum og straumum í rekstrarumhverfinu.
Þekking á helstu aðferðum sviðsmyndagreininga.
Öðlast grunnþekkingu við gerð og nýtingu sviðsmynda til notkunar í fyrirtækjum og stofnunum.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum og stjórnendum sem fást við stefnumótun og þróunarmál innan fyrirtækja og stofnana, sem vilja jafnframt nýta sviðsmyndir til að auka  persónulega hæfni og frama.

Nánar um kennara

Karl Friðriksson er stjórnarformaður Framtíðarseturs Íslands. Hann er hagfræðingur frá University of London og hefur að undanförnu stundað rannsóknir á sviði framtíðarfræða.
Sævar Kristinsson er rekstrar- og stjórnendaráðgjafi á ráðgjafasviði KPMG með stefnumótun og sviðsmyndagerð sem sérsvið. Hann er með cand. oecon. gráðu frá HÍ og MBA frá HR.
Sævar og Karl eru höfundar bókarinnar
Framtíðin frá óvissu til árangurs sem fjallar um notkun sviðsmynda (e. scenarios) m.a. við stefnumótun. Þeir hafa auk þess komið að gerð fjölda sviðsmynda fyrir stjórnvöld, fyrirtæki og sveitarfélög.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Mótaðu framtíðina með sviðsmyndagreiningum

Verð
57100

<span class="fm-plan">S&eacute;rhver &aacute;kv&ouml;r&eth;un sem tekin er &iacute; dag hefur &aacute;hrif &aacute; framt&iacute;&eth;ina. &Aacute; &thorn;a&eth; jafnt vi&eth; hvort sem h&uacute;n er tekin af einstaklingi e&eth;a af starfsm&ouml;nnum fyrirt&aelig;kja e&eth;a stofnana. &THORN;v&iacute; er r&ouml;kr&eacute;tt a&eth; sko&eth;a og reyna a&eth; skilja &thorn;&aacute; &aacute;hrifa&thorn;&aelig;tti sem skipta m&aacute;li vi&eth; &aacute;kvar&eth;anat&ouml;kuna &aacute;&eth;ur en til hennar kemur.</span>