Fjarnámskeið

Lestur ársreikninga

Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 5. október
Almennt verð 57.100 kr. 51.900 kr.

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Þri. 15. og fim. 17. okt. kl. 9:00 - 12:00

6 klst.

Bjarni Frímann Karlsson, fv. lektor við Viðskiptafræðideild HÍ

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Námskeið

Ársreikningar félaga koma mikið við sögu í efnahagslífinu og efni þeirra snertir líf margra beint og flestra annarra óbeint. Hvaða boðskap flytja ársreikningar okkur? Gefa þeir trúverðuga mynd af starfsemi viðkomandi félaga?

Á námskeiðinu verða grunnhugtök og forsendur ársreikninga kynnt. Uppbygging ársreiknings útskýrð og samhengið milli einstakra kafla. Lagagrundvöllur sem ársreikningar hvíla á og ábyrgð á innihaldi þeirra verður til umræðu. Tekin verða dæmi úr ársreikningum íslenskra félaga og rýnt í hvað þessir reikningar segja okkur, en jafnframt vakin athygli á því hvað þeir segja okkur ekki. Hvaða stærðir í reikningunum eru matskenndar og þá um leið háðar óvissu. Stefnt er að því að þátttakendur öðlist grunnþekkingu í lestri ársreikninga, þekkingu sem þeir geta síðan byggt á eftir áhuga og þörfum.

Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í ársreikninga.

Á námskeiðinu er fjallað um

Grunnhugtök, -reglur og forsendur reikningsskila.
Uppbyggingu ársreiknings. Samhengið milli einstakra kafla.
Regluverkið sem ársreikningar skulu hlíta. Ábyrgð á efni þeirra og framsetningu.
Óvissu og matskenndar stærðir. „Skapandi“ reikningsskil.
Samstæðureikningsskil. Kynning á eðli þeirra.
Nokkrar algengustu kennitölur sem reiknaðar eru á grundvelli ársreikninga.

Ávinningur þinn

Skilningur á tilgangi og eðli ársreikninga.
Skilningur á helstu hugtökum sem þar ber á góma.
Færni til að greina áberandi veikleika í viðkomandi reikningsskilum.
Skilningur á mismunandi nálgun við uppbyggingu ársreikninga og áhrif menningar á framsetningu þeirra.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla þekkingu á eðli ársreikninga en langar að fá innsýn í uppbyggingu þeirra og skilning á hvað þeir segja okkur og hvað þeir segja okkur ekki.

Nánar um kennara

Bjarni Frímann Karlsson f.v. lektor í reikningshaldi og endurskoðun við Viðskiptafræðideild HÍ frá 2005.

Aðrar upplýsingar

Engra hjálpargagna eða -tækja er krafist til að sitja námskeiðið.

Veitið athygli: Þeir sem sækja bæði Lestur ársreikninga og Greining ársreikninga fá 20% afslátt af hinu síðara.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Lestur ársreikninga

Verð
57100

<span class="fm-plan">&Aacute;rsreikningar f&eacute;laga koma miki&eth; vi&eth; s&ouml;gu &iacute; efnahagsl&iacute;finu og efni &thorn;eirra snertir l&iacute;f margra beint og flestra annarra &oacute;beint. Hva&eth;a bo&eth;skap flytja &aacute;rsreikningar okkur? Gefa &thorn;eir tr&uacute;ver&eth;uga mynd af starfsemi vi&eth;komandi f&eacute;laga?</span>