Fjarnámskeið

Á tímamótum

- fjármál við starfslok
Verð 23.000 kr.
Í gangi

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Þri. 16. apríl kl. 19:00 - 22:00

3 klst.

Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Námskeið

Markmið námskeiðsins er að aðstoða fólk við að undirbúa sig fyrir starfslok og þær breytingar sem verða eftir að störfum lýkur. Með aukinni þekkingu fáum við betri yfirsýn og auðveldara verður að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri.

Á námskeiðinu er fjallað um þá möguleika og þá valkosti sem þessi tímamót bjóða upp á. Farið verður, á einföldu og skýru máli, yfir reglur vegna skerðingar hjá Tryggingastofnun, lífeyrisréttindi og séreignarsparnað og þá möguleika sem í boði eru, ásamt því skoða þann sveigjanleika sem er í boði við starfslok.

Á námskeiðinu er fjallað um

Greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins og skerðingar á þeim.
Kosti og galla þess að flýta eða seinka töku lífeyris.
Hálfur lífeyrir – er það góður kostur?
Ráðstöfun séreignasparnaðar.

Ávinningur þinn

Umtalsverður fjárhagslegur ávinningur getur fylgt aukinni þekkingu á lífeyris- og skattamálum ásamt þekkingu á tryggingakerfinu.
Betri yfirsýn yfir væntar lífeyrisgreiðslur.
Minni líkur á endurkröfu frá Tryggingastofnun eða ófyrirséðum skattagreiðslum.
Með aukinni þekkingu verður auðveldara að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri.

Fyrir hverja

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja bæta þekkingu sína á fjármálum við starfslok, eru að huga að starfslokum, nálgast eftirlaunaaldur eða hafa nýverið hætt störfum.

Nánar um kennara

Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur, þekkir vel til lífeyrismála en hún hefur verið með ráðgjöf og fræðslu í lífeyrismálum til fjölda ára. Um langt skeið hefur hún haldið kynningar og námskeið á lífeyrisréttindum fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir. Hún hefur einnig setið í fræðslunefnd Landssamtaka lífeyrissjóða. Í dag starfar Lilja Lind sem sérfræðingur hjá Íslandsbanka auk þess sem hún vinnur að verkefnum á sveitastjórnarstigi.

Aðrar upplýsingar

Ekki er nauðsynlegt að undirbúa sig sérstaklega fyrir námskeiðið en gott er að skoða sín réttindi fyrir námskeiðið og gera sér grein fyrir stöðu sinni. Ef eitthvað er óljóst má senda spurningar á kennarann eða bera þær upp á námskeiðinu.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Á tímamótum

Verð
23000

<span class="fm-plan">Markmi&eth; n&aacute;mskei&eth;sins er a&eth; a&eth;sto&eth;a f&oacute;lk vi&eth; a&eth; undirb&uacute;a sig fyrir starfslok og &thorn;&aelig;r breytingar sem ver&eth;a eftir a&eth; st&ouml;rfum l&yacute;kur. Me&eth; aukinni &thorn;ekkingu f&aacute;um vi&eth; betri yfirs&yacute;n og au&eth;veldara ver&eth;ur a&eth; a&eth;laga sig a&eth; breyttu l&iacute;fsmynstri.</span>