Valmynd
Námskeiðið hefst 6. sept. og lýkur 13. des. Kennt er á miðvikudögum kl. 19:00-22:00. Einnig verður helgarlota dagana 27. - 29. okt. að Sólheimum í Grímsnesi.
Kennarar eru Svikaskáld, sem allar hafa MA gráðu í ritlist: Fríða Ísberg, rithöfundur. Melkorka Ólafsdóttir, tónlistarkona og rithöfundur. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, sviðslistakona og rithöfundur. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og ritstjóri. Þóra Hjörleifsdóttir, rithöfundur. Þórdís Helgadóttir, rithöfundur og leikskáld.
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Námskeiðið er í samstarfi við Svikaskáld, sex kvenna skáldakollektív
Námskeiðið Ritlist er í samstarfi við Svikaskáld, sex kvenna skáldakollektív. Saman hafa þær gefið út þrjár ljóðabækur og síðast skáldsöguna Olíu (2021) sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þær hafa haldið fjölmargar ritsmiðjur fyrir ungt fólk og staðið fyrir mánaðarlegum ljóðakvöldum í Gröndalshúsi.
Þátttakendur munu kynnast fjölbreyttum hliðum skapandi skrifa og læra að nýta hin ýmsu tól úr verkfærakistu rithöfundarins. Námið skiptist í vinnustofur, heimaverkefni, þátttöku í rithringjum og tilsögn í upplestri. Kennsla fer fram eitt kvöld í viku, en þar fyrir utan vinna þátttakendur í textum sínum heima og skila reglulega verkefnum til ritvina og kennara. Á þann hátt fæst þjálfun í að veita og taka á móti gagnlegri endurgjöf og mynda samfélag skrifandi fólks. Námskeiðinu lýkur á upplestrarkvöldi og viðtalstíma með kennara þar sem þátttakendur fá ítarlega endurgjöf á skilaverkefni.
Þátttakendur munu að námskeiði loknu hafa í handraðanum úrval af ólíkum textum sem gætu nýst fólki sem hefur hug á að sækja um frekara ritlistarnám á háskólastigi - eða sem efniviður í áframhaldandi skrif.
Upphaf, kveikjur og skrif.
Líf listamannsins, að sækja sér innblástur.
Prósa og ljóð - tækni, lestur, skrif og deiling.
Óskáldaðan texta (non-fiction) - minningar, ferðasögur, esseyjur.
Leikinn - raddir og samtöl, ósjálfráð skrif, súrrealísk skrif og pönk.
Texta sem listform.
Útgáfuferlið, sjálfsútgáfu og samstarf með forlögum. Endurskrif og ritstjórn.
Framkomu og upplestur.
Þú eykur færni þína í skrifum skapandi texta af ýmsum gerðum.
Þú lærir að greina texta í ritstjórnarferli, veita og vinna úr uppbyggilegri endurgjöf.
Þú öðlast færni í að beita ólíkum vinnuaðferðum rithöfunda.
Þú kynnist grunnbókmenntahugtökum sem nýtast við skrif skapandi texta.
Þú öðlast aukið sjálfstraust í eigin sköpun og skrifum.
Veitt er endurgjöf á hagnýta verkefnavinnu, en námið er ekki metið til einkunna.
Ritlistarnám Svikaskálda hentar þeim sem vilja öðlast meira sjálfstraust í eigin skrifum og kynnast ólíkum gerðum texta. Námskeiðið hentar þeim sem vilja sökkva sér í eigin ritstörf og skerpa rödd sína sem rithöfundar.
Námskeiðið er eitt misseri, samtals 60 klst. Kennt er á miðvikudögum kl. 19:00-22:00 og í hvert sinn munu tveir kennarar sjá um kennslu.Í október verður helgarlota skammt frá höfuðborgarsvæðinu, þar sem boðið verður upp á ritsmiðju í anda Svikaskálda. Gisting, fæði og kennsla þessa helgi er innifalin í námsgjöldum, en nemendur sjá sjálfir um ferðir.
Nánari upplýsingar má finna í dagskrá námskeiðsins hér (PDF).
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span style="font-size: 12px;" >Námskeiðið Ritlist er í samstarfi við Svikaskáld, sex kvenna skáldakollektív. Saman hafa þær gefið út þrjár ljóðabækur og síðast skáldsöguna </span><span style="font-size: 12px;font-style:italic;" >Olíu </span><span style="font-size: 12px;" >(2021) sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þær hafa haldið fjölmargar ritsmiðjur fyrir ungt fólk og staðið fyrir mánaðarlegum ljóðakvöldum í Gröndalshúsi.</span>