Senn líður að jólum og margir farnir að huga að jólagjöfum ársins. Á heimasíðunni okkar eru sífellt að bætast inn spennandi námskeið á vormisseri sem eru tilvalin gjöf fyrir fróðleiksfúsa.
Gjafabréf Endurmenntunar er góð gjöf sem opnar dyr að spennandi heimi fræðslu og fróðleiks og er þar að auki vistvænn kostur sem skilur eftir sig dýrmæta þekkingu. Í boði er að velja ákveðið námskeið eða upphæð að eigin vali. Gjafabéfið rennur ekki út og því er nægur tími fyrir handhafa að finna rétta námskeiðið.
Hér að neðan höfum við tekið saman hugmyndir að skemmtilegum námskeiðum sem eru líkleg til að vekja lukku hjá ástvinum þessi jólin. Pantaðu þitt gjafabréf HÉR.
Byrjaðu í golfi - fyrir byrjendur og lengra komna
Saga, umhverfi og framtíð Nílar
Núvitundarnámskeið: Velkomin í núið - frá streitu til sáttar
Garðfuglar - fóðrun og aðbúnaður
Íslendingasagnanámskeið: Eiríks saga, Grænlendinga saga og sögur af landafundum
Fleiri námskeið HÉR