Valmynd
Mið. 15. feb. kl. 19:00 - 22:00
Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun
Endurmenntun, Dunhaga 7
Sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga er ört vaxandi vandi. Hegðunin veldur spennu og álagi í fjölskyldum, unglingasamfélögum og hjá þeim sem starfa með unglingum. Ástæðan er m.a. sú að erfitt getur verið að greina á milli sjálfskaðahegðunar og sjálfsvígshegðunar.
Sjálfskaða- og sjálfvígshugsanir og hegðun er algengari hjá unglingum en fullorðnum m.a. vegna aldurs-, þroska-, og aðstæðutengdra áhrifaþátta.
Þar sem sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun er nokkuð algeng meðal unglinga er gott fyrir foreldra að hafa þekkingu á einkennum, ástæðum og hvernig best er að bregðast við miðað við þá þekkingu sem er til í dag.
Skilgreiningar á sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun, algengi og tilgangi.
Áhættuþættir og verndandi þættir fyrir sjálfskaðahegðun.
Hvaða áhrif getur sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun haft á foreldra og fjölskyldur.
Gagnleg og ógagnleg viðbrögð foreldra, fagfólks og þeirra sem starfa með börnum.
Hvaða meðferðir lofa góðu varðandi árangur.
Þekking á hugtökum, einkennum, áhrifum, áhættuþáttum og tilgangi sjálfskaða- og sjálfsvígshegðunar.
Að vita hvernig hægt er að bregðast við í aðstæðum þegar sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun er til staðar.
Námskeiðið er ætlað foreldrum og aðstandendum barna og unglinga sem vilja auka þekkingu sína á viðfangsefninu.
Kristín Inga Grímsdóttir, sérfræðingur í barna- og unglingageðhjúkrun. Starfar á göngudeild BUGL og á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur verið með svipað námskeið sem ætlað er fagfólki í Endurmenntun HÍ yfir nokkurra ára skeið. Ásamt því hefur hún kennt efnið í hjúkrunarfræðideild HÍ og HA, þá hefur hún haldið fjölda fyrirlestra og námskeið um efnið bæði á ráðstefnum og fyrir fagfólk sem vinnur með börn og unglinga.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Sjálfskaða- og sjálfsvígshegðun unglinga er ört vaxandi vandi. Hegðunin veldur spennu og álagi í fjölskyldum, unglingasamfélögum og hjá þeim sem starfa með unglingum. Ástæðan er m.a. sú að erfitt getur verið að greina á milli sjálfskaðahegðunar og sjálfsvígshegðunar.</span>