Staðnámskeið

Orkustjórnun

- leið til að fyrirbyggja streitu og auka vellíðan
Verð 29.400 ISK
Aðeins 1 sæti laust
Í gangi

Mið. 22. mars kl. 16:15 - 19:15

3 klst.

Ragnheiður Stefánsdóttir, mannauðsstjóri og markþjálfi

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Samfélagið í dag einkennist af miklum hraða og áreiti. Verkefnin sem einstaklingar takast á við í lífi og starfi verða flóknari og kröfur um hraða, gæði og árangur aukast. Hver og einn einstaklingur er að sinna mörgum hlutverkum og upplifir oft togstreitu á milli hlutverka. Þreyta, orkuleysi og það að komast ekki yfir verkefni dagsins er eitthvað sem margir upplifa. Sumir tala um að vera á sjálfstýringu og leita í skyndilausnir eins og kaffi til að komast í gegnum daginn. Allir vilja þó vakna fullir af orku og leggja sig fram í starfi og einkalífi, skila sem mestum afköstum og njóta lífsins til fulls.

Viðfangsefnið á þessu námskeiði er orkustjórnun sem er aðferð sem hjálpar okkur að komast nær því markmiði. Með orkustjórnun eykst líkamleg og tilfinningaleg orka einstaklinga og þar með seigla þeirra og úthald.

Á námskeiðinu er fjallað um

Orkustjórnun og hvernig hún nýtist til að auka orkuna og kraftana.
Líkamlega orku, tilfinningalega orku, andlega orku og hugræna orku og hvaða leiðir við getum farið til að auka orku og vellíðan á þessum mismunandi sviðum.
Fjölmargar einfaldar og raunhæfar leiðir til að auka orkuna.
Hversu mikilvægt það er að setja sjálfan sig í forgang og taka ábyrgð á að endurnýja orkuna og huga þannig að eigin starfsgetu, heilsu og vellíðan.
Mikilvægi þess að hver og einn meti eigin orku og munu þátttakendur gera það á námskeiðinu og setja sér raunhæf markmið um hvernig þeir geta aukið hana og þar með vellíðan í lífi og starfi.

Ávinningur þinn

Þekkja orkustjórnun og hvernig hún nýtist okkur sem tæki eða aðferð til að auka orku og vellíðan.
Kunna einfaldar og árangursríkar leiðir til að auka orkuna.
Tækifæri til að meta eigin orku og setja niður raunhæfa áætlun um hvernig hún verður aukin á næstu misserum.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja auka orku sína og þar með vellíðan og árangur í lífi og starfi.

Nánar um kennara

Ragnheiður Stefánsdóttir er með B.Ed. kennaramenntun, MA í mannauðsstjórnun frá HÍ og markþjálfunarnám frá HR. Ragnheiður hefur lengi starfað sem mannauðsstjóri og mannauðsráðgjafi þar sem megináherslan hefur verið á stjórnendaráðgjöf og starfsþróunarmál.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Orkustjórnun

Verð
29400

<span class="fm-plan">Samf&eacute;lagi&eth; &iacute; dag einkennist af miklum hra&eth;a og &aacute;reiti. Verkefnin sem einstaklingar takast &aacute; vi&eth; &iacute; l&iacute;fi og starfi ver&eth;a fl&oacute;knari og kr&ouml;fur um hra&eth;a, g&aelig;&eth;i og &aacute;rangur aukast. Hver og einn einstaklingur er a&eth; sinna m&ouml;rgum hlutverkum og upplifir oft togstreitu &aacute; milli hlutverka. &THORN;reyta, orkuleysi og &thorn;a&eth; a&eth; komast ekki yfir verkefni dagsins er eitthva&eth; sem margir upplifa. Sumir tala um a&eth; vera &aacute; sj&aacute;lfst&yacute;ringu og leita &iacute; skyndilausnir eins og kaffi til a&eth; komast &iacute; gegnum daginn. Allir vilja &thorn;&oacute; vakna fullir af orku og leggja sig fram &iacute; starfi og einkal&iacute;fi, skila sem mestum afk&ouml;stum og nj&oacute;ta l&iacute;fsins til fulls.</span>