Staðnámskeið

Seigla og bjargráð unglinga og ungmenna

Verð 28.500 kr.
Í gangi

Þri. 28. nóv. kl. 13:00 - 16:00

3 klst.

Katrín Sverrisdóttir er klínískur sálfræðingur með sérhæfingu í hugrænni atferlismeðferð (HAM) og díalektískri atferlismeðferð (DAM), Ásta Rún Valgerðardóttir er klínískur sálfræðingur með diplóma í lýðheilsuvísindum.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Viltu styrkjast og fá fleiri verkfæri til að styðja við unglinga og ungmenni í helstu áskorunum daglegs lífs Á námskeiðinu er fjallað um áskoranir unglinga og ungmenna í daglegu lífi og leiðir til að mæta þeim með verkfærum úr hugrænni atferlismeðferð (HAM). Áhersla er lögð á nokkrar hagnýtar aðferðir sálfræðinnar sem þátttakendur geta nýtt í sínu starfi.

Námskeiðið byggist á hugmyndafræði HAM sem er áhrifarík meðferð við ýmsum geðrænum vanda. Meðferðin byggist á þeirri kenningu að hugsanir, tilfinningar og hegðun séu þættir sem tengjast og hafa áhrif hver á annan. Áhersla er lögð á hagnýt verkfæri til að rjúfa vítahringi sem geta myndast í hugsun og hegðun. Jafnframt verður skoðað hvernig hægt er að auka tilfinningaþol og ná þannig betri tökum á lífinu.
Verkfæri verða kynnt til sögunnar, í formi fræðslu sem og með verklegum æfingum. Þátttakendur öðlast reynslu af verkfærum til að geta nýtt á markvissan hátt í krefjandi áskorunum í sínu starfi með unglingum og ungmennum. Byggt verður á einstaklings- og hópvinnu á staðnum.

Á námskeiðinu er fjallað um

HAM líkanið - hugsanir, hegðun, tilfinningar, líkamleg einkenni.
Hugsanir - hugsanaskrá með endurmati, hugsanaskekkjur, festu- og vaxtarhugarfar.
Hegðun - vítahringir, jafnvægi og að setja mörk.
Tilfinningar og viðbrögð við þeim.
Kortlagningu styrkleika og bjargráð til að auka seiglu og tilfinningaþol einstaklinga.
Þakklætisæfingar og jákvæð styrkleikadagbók.
Samkennd í eigin garð.

Ávinningur þinn

Tækifæri til að kynnast grunnþáttum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM).
Að læra að endurmeta óhjálplegar hugsanir og þekkja helstu hugsanaskekkjur.
Að kynnast aðferðum til að þekkja eigin mörk ásamt því að geta betur sett öðrum mörk til að styðja við jafnvægi í daglegu lífi.
Að öðlast verkfæri til að draga fram styrkleika.
Aukin sjálfsþekking og bjargráð.

Fyrir hverja

Ætlað þeim sem starfa með unglingum og ungmennum eins og t.d. kennurum á unglinga- og framhaldsstigi, skólahjúkrunarfræðingum, náms- og starfsráðgjöfum og starfsfólki félagsmiðstöðva.

Nánar um kennara

Katrín Sverrisdóttir, klínískur sálfræðingur með sérhæfingu í hugrænni atferlismeðferð (HAM) og díalektískri atferlismeðferð (DAM). Katrín er með reynslu af námskeiðshaldi og námskeiðsgerð fyrir Landspítalann, Háskóla Íslands, Heilsugæsluna sem og á stofu. Hún hefur áður haldið námskeið á vegum EHÍ um þunglyndi ungmenna og viðbrögð varðandi sjálfsvígshættu.
Ásta Rún Valgerðardóttir, klínískur sálfræðingur með diplóma í lýðheilsuvísindum. Hún hefur starfað á Landspítalanum, á stofu og í Háskóla Íslands ásamt því að hafa haldið námskeið fyrir Heilsugæsluna. Undanfarin 3 ár hefur hún verið skólasálfræðingur við Verzlunarskóla Íslands.

Aðrar upplýsingar

Fyrir áhugasama verður bent á greinar og ítarefni.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Seigla og bjargráð unglinga og ungmenna

Verð
28500

<span class="fm-plan">Viltu styrkjast og f&aacute; fleiri verkf&aelig;ri til a&eth; sty&eth;ja vi&eth; unglinga og ungmenni &iacute; helstu &aacute;skorunum daglegs l&iacute;fs &Aacute; n&aacute;mskei&eth;inu er fjalla&eth; um &aacute;skoranir unglinga og ungmenna &iacute; daglegu l&iacute;fi og lei&eth;ir til a&eth; m&aelig;ta &thorn;eim me&eth; verkf&aelig;rum &uacute;r hugr&aelig;nni atferlisme&eth;fer&eth; (HAM). &Aacute;hersla er l&ouml;g&eth; &aacute; nokkrar hagn&yacute;tar a&eth;fer&eth;ir s&aacute;lfr&aelig;&eth;innar sem &thorn;&aacute;tttakendur geta n&yacute;tt &iacute; s&iacute;nu starfi.</span>