Valmynd
Mið. 1. mars kl. 13:00 - 16:00
Guðný Hallgrímsdóttir, Mth. starfandi prestur
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Á námskeiðinu er fjallað um hinar ýmsu myndir sorgarinnar og hvernig þessar myndir snerta börn og unglinga hvert á sinn hátt út frá aldri þeirra og þroska.
Fjallað verður um viðbrögð barna og unglinga við ýmsum breytingum í lífi þeirra s.s. vegna skilnaðar, flutninga, vinamissis, dauða gæludýra og dauða nákominna. Veitt er innsýn inn í heim þeirra þegar þau upplifa sorg og missi við þessar aðstæður og hvaða úrræðum við getum beitt þeim til stuðnings.
Sorg og sorgarferlið.
Viðbrögð barna og unglinga í sorg.
Að lesa í umhverfið og myndir sorgarinnar.
Viðbrögð okkar og úrvinnslu.
Úrræði til hjálpar „skyndihjálparkassinn“.
Að gera þig læsari á viðbrögð barna og unglinga í sorg.
Að þekkja betur þín eigin viðbrögð.
Að auka styrk þinn og getu til að mæta barni eða unglingi í sorg.
Að hafa á takteinum hinn „andlega skyndihjálparkassa.“
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum og unglingum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum, skólahjúkrunarfræðingum, íþrótta- og tómstundastarfsmönnum og stuðningsfulltrúum.
Guðný Hallgrímsdóttir Mth er starfandi prestur. Hún er með tvö meistarapróf í sálgæslufræðum og hefur einnig lagt stund á námsráðgjöf og fötlunarfræði. Hún hefur um þriggja áratuga reynslu af því að vinna með og mæta fólki í sorg á öllum aldri. Hún hefur skrifað bók um sorgina og ólíkar/mismunandi myndir hennar og haldið fyrirlestra víða um sorg og sorgarviðbrögð.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Á námskeiðinu er fjallað um hinar ýmsu myndir sorgarinnar og hvernig þessar myndir snerta börn og unglinga hvert á sinn hátt út frá aldri þeirra og þroska.</span>