Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. og fim. 15. okt. - 17. okt. kl. 17:00 - 19:55 (2x)
6 klst.Guðmundur Björnsson
Sævar Helgi Bragason
Elín Björk Jónasdóttir
Fjallað er um norðurljós og tilurð þeirra. Komið er inn á sögulega norðurljósaatburði, fornar tilgátur og farið yfir það hvernig þekking á fyrirbærinu jókst smám saman undir leiðarljósi vísindanna. Rætt er um samspil sólar og sólvindsins við segulsvið jarðar og tíðni norðurljósa þannig tengd við virkni sólar. Einnig er fjallað um gagnleg atriði varðandi norðurljósaskoðun og ljósmyndun.
Námskeiðið er bæði hægt að sækja í staðnámi og fjarnámi. Fyrirlestrar eru teknir upp og nemendur geta hlustað á upptökur þegar þeim hentar.
Þátttakendur hafa val um að þreyta námsmat sem byggir á stuttum könnunum, pistlum og verkefnum. ATH. að námsmat getur teygt sig fram yfir lokadagsetningu námskeiðs. Með því að ljúka námsmati hefur þátttakandi möguleika á að fá námskeiðið metið inn í leiðsögunámi Endurmenntunar.
Fyrir alla áhugasama um veðurfræði og norðurljós. Námskeiðið er tilvalið til endurmenntunar leiðsögumanna.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.