Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. og fim. 26. sept. - 10. okt. kl. 17:00 - 19:55 (5x)
15 klst.Guðmundur Björnsson
Á þessu námskeiði er fjallað um íslenskt nútímasamfélag og þróun þess út frá ýmsum þáttum, svo sem lýðfræði, landfræði, félagsvísindum og heilsuvísindum. Megináherslan verður á þjóðfélagið eins og það er í dag, það sem er efst á baugi hverju sinni. Farið er yfir þróun byggða og svæða og helstu grunnhugtök íslensks samfélags með áherslu á stjórnskipun þess og fjallað um ýmsa þætti innan opinberrar stjórnsýslu, velferðarkerfið, innlend stjórnmál og tengsl þess við alþjóðasamfélagið, vinnumarkað og innflytjendur. Enn fremur er fjallað um þær breytingar sem hafa átt sér stað í íslensku efnahagslífi og mögulegar afleiðingar þess á samfélagið ásamt stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi.
Námskeiðið er bæði hægt að sækja í staðnámi og fjarnámi. Fyrirlestrar eru teknir upp og nemendur geta hlustað á upptökur þegar þeim hentar.
Þátttakendur hafa val um að þreyta námsmat sem byggir á stuttum könnunum, pistlum og verkefnum. ATH. að námsmat getur teygt sig fram yfir lokadagsetningu námskeiðs. Með því að ljúka námsmati hefur þátttakandi möguleika á að fá námskeiðið metið inn í leiðsögunám Endurmenntunar.
Fyrir alla áhugasama um íslenskt nútímasamfélag og þróun þess. Námskeiðið er tilvalið til endurmenntunar leiðsögumanna.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.