Staðnámskeið

Ítalska I

Aðeins 1 sæti laust

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. og mið. 23. sept. - 9. okt. kl. 17:15 - 19:15 (6x)

12 klst.

Maurizio Tani

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 49.400 kr.
Námskeið

Langar þig til þess að læra tungumálið þeirra Dante, Leonardo, Galilei, Verdi, Pinocchio og Bocelli? Langar þig til að tala ítölsku og fá nýja sýn inn í ítalska menningu?

Á námskeiðinu er fjallað um grunnatriði í ítölsku og gefin innsýn í menningu Ítalíu. Einfaldir og markvissir kennsluhættir skila þátttakendum góðri kunnáttu á stuttum tíma sem nýtist vel við daglegar athafnir og í ferðalögum. Ekki er krafist neinnar forkunnáttu.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Grunnatriði í málfræði eins og setningarfræði, nafnorð, greinir, lýsingarorð og sagnorð.
  • Grunnatriði í ítalskri hljóðfræði og framburði.

Ávinningur þinn

  • Þú lærir að kynna þig og tala um sjálfan þig og áhugamál þín og spyrja á ítölsku: hvað heitir þú, hvaðan ertu, hvaða tungumál talar þú, hvar býrðu, hvað er starf þitt, hvað ertu gamall.
  • Þú lærir að spyrja um og lýsa stöðum og fólki, spyrja um merkingu orða. 
  • Þú lærir að nota ítölsku á ferðalagi um Ítalíu til að geta átt samskipti við heimamenn á kaffihúsi eða veitingastað.

Nánar um kennara

Maurizio Tani hefur verið stundakennari við HÍ síðan 2001 og hefur langa reynslu af því að kenna ítölsku. Hann er með MA í menningarfræði, BA í ítölskum málvísindum og menningu og einnig er hann með diplómu í ítölskum kennslufræðum. Hann hefur gefið út margar rannsóknir og bækur.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Ítalska I

Verð
49400