Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Námskeiðið hefst föstudaginn 20. september en þá fá þátttakendur fjarnámskeiðs senda upptöku með fyrsta fyrirlestri námskeiðsins. Upptökur verða svo sendar hvern föstudag til og með 8. nóvember (8x).
16 klst.Aðalheiður Guðmundsdóttir
Athugið! Í boði eru þrír möguleikar til að stunda námskeiðið:
Á námskeiðinu verður Völsunga saga (13. öld) lesin með hliðsjón af hetjukvæðum Eddu. Í hverjum tíma verður farið í efni nokkurra kafla, auk þess sem fjallað verður um tilteknar söguhetjur og skapgerðareinkenni þeirra.
Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum:
Hvernig er Völsunga saga samsett?
Hvernig hetja er Sigurður Fáfnisbani?
Hvers eðlis er samband Sigurðar og Brynhildar og hvernig tekur Brynhildur á svikum og blekkingum Sigurðar?
Hver eru einkenni Gunnars, eiginmanns Brynhildar, og hvaða sagnir liggja að baki dauða hans í ormagryfju Atla konungs?
Hvað er það sem mótar skaplyndi Guðrúnar Gjúkadóttur, systur Gunnars og eiginkonu Sigurðar, og hvaðan spretta persónur á borð við Atla Húnakonung, Jörmunrek, konung Austgota, og Jónakur, síðasta eiginmanns Guðrúnar?
Hliðstæður þessara sagna verða skoðaðar í evrópsku samhengi, hvort heldur sem er í sagnaritun, kveðskap eða annars konar listsköpun.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á að kynna sér íslenskar miðaldabókmenntir. Ekki er gerð krafa um undirbúningsmenntun.
Völsunga saga er til í mörgum útgáfum, m.a. í öllum útgáfum af fornaldarsögum Norðurlanda (1. bindi). Í raun má notast við hvaða útgáfu sem er en sérstaklega er þó mælt með annað hvort:
a) Völsunga saga og Ragnars saga loðbrókar, útg. Örnólfur Thorsson. Reykjavík: Mál og menning, 1985. Bókin Til á bókasöfnum en er líklega uppseld víðast hvar.
b) Völsunga saga: The Saga of the Volsungs; The Icelandic Text According to MS Nks 1824 b, 4°, þýð. Kaaren Grimstad. Bibliotheca Germanica, Series nova 3. Saarbrücken: AQ-Verlag, 2000. https://www.book2look.com/vBook.aspx?id=5nYjPDbWBd&euid=1224797&ruid=0&referURL=http://book2look.de
Það er líka í lagi að nota rafræna útgáfu sem er aðgengileg á netinu (með samræmdri stafsetningu): https://heimskringla.no/wiki/V%C3%B6lsunga_saga
Þá er gott að hafa til hliðsjónar góða útgáfu af Eddukvæðunum, t.d.:
Eddukvæði I–II. Útg. Jónas Kristjánsson og Vésteinn Ólason. Íslenzk fornrit. Reykjavík: Hið íslenska fornritafélag, 2014.
Eddukvæðin eru þó einnig aðgengileg á netinu:
https://heimskringla.no/wiki/Eddukv%C3%A6%C3%B0i
Í námskeiðinu er talsvert stuðst við:
Aðalheiður Guðmundsdóttir. Arfur aldanna I–II. Reykjavíðk: Háskólaútgáfan, 2021.
Ekki er þó ætlast til að nemendur lesi úr þessari bók fyrir tíma.
Aðalheiður Guðmundsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er vítt og nær yfir ólíkar greinar miðaldabókmennta (einkum fornaldarsögur, riddarasögur, rímur og sagnadansa), kveðskap frá síðari öldum, sagnir og ævintýri. Aðalheiður vinnur nú að útgáfu fornaldarsagna og fjögurra binda ritröð um sömu sögur, sbr. Arf aldanna I–II (útg. 2021). Aðalheiður hefur verið gestakennari við háskóla víða um Evrópu.
Um birtingar hennar, sjá hér.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.