Matsfræði
Grunnnám 24 ein -Markaðsmat 50 ein- Kostnaðarmat 50 ein (Haust 2010)

Skráningu er lokið.

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.


Námsbrautin er ætluð verk- og tæknifræðingum, lögfræðingum, viðskiptafræðingum, byggingafræðingum, iðnfræðingum, löggiltum fasteignasölum og arkitektum. Auk þess er námið ætlað þeim sem hafa umfangsmikla reynslu af mannvirkjagerð og fasteignamarkaði og vilja afla sér frekari menntunar á þessu sviði.
Stúdentsprófs eða sambærilegs náms er krafist sem lágmarksinntökuskilyrða.
Á haustmisseri 2010 verða kennd námskeiðin Skoðun I og Skoðun II. Nánari tímsetning verður tilkynnt síðar.

Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.

 

Námsbrautinni er skipt upp í þrjá meginlínur:
Grunnnám (24 ECTS einingar) sem er undanfari hinna tveggja, Markaðsmat (50 ECTS einingar) og Kostnaðarmat (50 ECTS einingar).

Viðfangsefni námsbrautarinnar er að nemendur nái valdi á að beita faglegum og viðurkenndum aðferðum við verðmætamat á eignum og réttindum. Jafnframt því tileinka nemendur sér fagleg vinnubrögð við skoðun og mat á ástandi eigna ásamt því að þekkja starfsumhverfi matsmanna á Íslandi.

Verð á námskeiðum í grunnnámi, Skoðun I og Skoðun II: Stakt námskeið kostar 160.00. Séu bæði grunnnámskeiðin tekin kostar síðara námskeiðið 140.000.

Smella þarf á námskeiðsheiti hér að neðan til að fá frekari upplýsingar og skrá sig:

Skoðun I

Skoðun II

 

Nánari lýsing

 

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

  

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

Kennsla / umsjón:

Allir kennarar hafa víðtæka sérþekkingu og reynslu á þeim sviðum sem kennd eru hverju sinni en það eru sérfræðingar frá Háskóla Íslands, fyrirtækjum og stofnunum.

Fyrirspurnum svara Erna Guðrún Agnarsdóttir, netfang: ega@hi.is, sími: 525-4909 og Ragnar Ómarsson, netfang rom@almenna.is sími 894-8604.


Hvenær:

Á haustmisseri 2010 verða kennd námskeiðin Skoðun I og Skoðun II. Nánari tímsetning verður tilkynnt síðar.

 

 

Verð: Nánar auglýst síðar.

 

[Til baka]