Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna

Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.

Skráningarfrestur er til 22. september 2010.

 

Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun, þ.e. leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni barna á leikskólaaldri. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað um mikilvægi traustra tengsla við ung börn, aðferðir til að skipuleggja umhverfið og deildarstarfið þannig að það ýti undir jákvæða hegðun, skýr fyrirmæli og reglur, leiðréttandi samskipti og fjölbreyttar leiðir til að styrkja viðeigandi hegðun. Í seinni hlutanum verður fjallað um aðferðir til að kenna börnum vinafærni, tilfinningafærni, reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni.

Á námskeiðinu verður einnig kennt að nota Matslista á vinnubrögðum til að ýta undir tilfinninga- og félagsþroska ungra barna sem gerir leikskólastarfsfólki kleift að meta og innleiða vinnubrögðin markvisst á deildinni.

Markmið með námskeiðinu er að auka þekkingu þátttakenda á:

  • aðferðum til að stuðla að traustum tengslum við ung börn
  • leiðum til að skipuleggja umhverfið og deildarstarfið þannig að það ýti undir jákvæða hegðun barnanna
  • aðferðum til að kenna ungum börnum vinafærni, tilfinningafærni, reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni.


Efni námskeiðsins er kennt með fyrirlestrum og verkefnavinnu, bæði innan og utan námskeiðsins.

Mælt er með því að tveir eða fleiri frá hverjum leikskóla sæki námskeiðið til að styðja við árangursríka innleiðingu vinnubragða í leikskólanum.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Dr. Anna-Lind Pétursdóttir, sálfræðingur og lektor við Menntavísindasvið HÍ


Hvenær:

Fim. 30. sept. og fös. 1. okt. kl. 8:30 - 16:00

 

 

Verð: 32.900 kr.

 

[Til baka]