Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi
Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.
Á námskeiðinu verður einnig kennt að nota einfaldan matslista um bekkjarstjórnun sem gerir kennurum kleift að meta að hve miklu leyti verið er að nota vinnubrögð sem hafa reynst vel og ígrunda eigin starfsaðferðir.
Efni námskeiðsins er kennt með fyrirlestrum og verkefnavinnu.
|
|
Kennsla / umsjón:
Dr. Anna-Lind Pétursdóttir, sálfræðingur og lektor við Menntavísindasvið HÍ
Hvenær: Fim. 18. og fös. 19. nóv. kl. 8:30 - 16:00
Verð: 32.900 kr.
|