Kvíði barna og unglinga

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans


Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun.
Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 21. október 2010.

 

Farið verður yfir helstu kvíðaraskanir barna og unglinga, aðskilnaðarkvíða, almenna kvíðaröskun, fælni, ofsakvíða, félagskvíða, kjörþögli og áráttu-þráhyggjuröskun. Helstu viðhaldandi þættir verða kynntir s.s. ofvernd, forðun og hugsanaskekkjur. Fjallað verður um æskileg viðbrögð við kvíða barna og unglinga og notkun atferlismótunar til að takast á við kvíðahegðun. Kennslan byggir á fyrirlestrum um ofangreinda þætti og léttum hóp-verkefnum.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:

  • ”Námskeiðið var gríðarlega gott og gagnlegt. Kennarar komu efninu vel frá sér og hagnýtingin fyrir starf manns mjög góð”
  • ”Mjög fínt að fá tæki í hendur til að vinna með”
  • ”Mjög gott námskeið, vekur mann til umhugsunar :)”
  • ”Alveg hreint frábært námskeið og MJÖG þarft”

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Berglind Brynjólfsdóttir og Sigríður Snorradóttir, sálfræðingar á Barna- og Unglingageðdeild Landspítalans


Hvenær:

Fös. 29. okt. kl. 9:00 - 17:00

 

 

Verð: 23.900 kr.

 

[Til baka]