Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi
Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta: - Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Þátttakendur munu læra að nota hugarkort sem skipulagningarverkfæri og þannig auðvelda mörg verkefni sem snúa að skipulagningu kennslunnar. Hugarkort geta auðveldað yfirsýn yfir kennslu og verkefni heils misseris, jafnt sem einnar kennslustundar. Þar að auki munu þátttakendur læra að nýta hugarkort til að kynna og útskýra námsefnið fyrir nemendum sínum.Þá munu þátttakendur kanna notkun hugarkorta til þess að útbúa námsefni fyrir nemendur sína, hvort sem það er gefið út - eða því dreift á pappír eða á vefnum.
Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.
Kennsla fer fram með stuttum fyrirlestrum, umræðum, einstaklings- og hópverkefnum.
|
|
Kennsla / umsjón:
Hróbjartur Árnason, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Hvenær: Mið. 20. okt. kl. 12:00 -16:00
Verð: 13.500 kr.
|