Google í skólastarfi

Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.

 

Google verkfærakistan hentar öllum skólastigum og er námskeiðið því tilvalið fyrir alla kennara og yfirmenn menntastofnana. Lögð er sérstök áhersla á grunnþekkingu á verkfærunum og hvernig þau geta nýst í daglegu skólastarfi.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Maríanna Friðjónsdóttir, sviðsstjóri hjá Kvikmyndaskóla Íslands


Hvenær:

Mán. 20. og 27. sept. kl. 15:00 - 19:00

 

 

Verð: 18.500 kr.

 

[Til baka]