Excel II - fjármál og rekstur

Ætlað öllum sem þurfa að vinna með mikið af gögnum eða setja upp líkön sem byggjast á sjálfvirkni, þ.e. fyrir alla í rekstrar-, vöru- og fjármálastjórnun og aðra sem hafa notað Excel en langar að læra meira.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið.
Ein. FLE: 12 Almennt.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

 

Hér er farið dýpra í einstök atriði sem tekin eru fyrir í Excel I. Farið er í tölfræðilegar aðgerðir og gerð spálíkana. Bestun með Excel/Solver og túlkun á niðurstöðum. Farið er í innbyggð föll í Excel og búin til föll sem byggjast á sjálfvirkni, leitarföllum, snúningstöflu (PivotTable) og Scenario Manager. Kennd er gerð fjölva (macro) og hvernig nýta má þá til að ná í gögn í gagnagrunna (innan sem utan fyrirtækja) og laga niðurstöðuna að hverjum notanda fyrir sig. Gerð líkana fyrir arðsemismat. Visual Basic kynnt og hvernig nýta megi það til að loka svæðum/reitum.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Eðvald Möller, M.Sc.E. Royal Institue of Technology, Svíþjóð, MBA, University of Edinburgh Management School


Hvenær:

Þri. og fim. 12. - 19. okt. kl. 8:30-12:30 (3x)

 

 

Verð: 32.900 kr.

 

[Til baka]