Excel I - fjármál og rekstur

Ætlað öllum þeim sem starfa með Excel í tengslum við fjármál og rekstur og langar að læra meira. Gert er ráð fyrir nokkurri færni í Excel, en farið er hratt yfir grunnatriði í upphafi námskeiðs.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið.
Ein. FLE: 12 almennt.

Skráningarfrestur er til 17. september 2010.

 

Námskeiðið byrjar á upprifjun á öllum helstu grunnatriðum er varðar innslátt, afritun og útlit. Flýtileiðir eru kynntar og fleira sem hjálpar fólki að vinna með Excel. Farið er yfir allar helstu aðgerðir í Excel sem nýtast við vinnslu gagna, m.a. vinnslu með margar síður í senn og notkun nafna og fasta. Skoðuð eru innbyggð föll, t.d. fjármálaföll, textaföll, leitarföll (lookup). Farið er í gerð einfalds rekstrarlíkans. Kennt að beita aðgerðunum Sort (röðun gagna), Filter (síun gagna), Goal-Seek (nálgun), Scenario (notkun sviðsetninga) og Consolidate (samantekt gagna). Einnig er farið í grunnatriði í gerð myndrita og hvernig búa á til einfaldan macro (fjölva).

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Oddur Sigurðsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka


Hvenær:

Mán. og mið. 27. og 29. sept. og 4. okt. kl. 8:30-12:30 (3x)

 

 

Verð: 32.900 kr.

 

[Til baka]