Að telja rétt fram

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur sem fræðimenn, rithöfundar og listamenn svo og þeir sem annast um skattskil slíkra aðila. Námskeiðið hentar einnig öllum sem gera út að heiman og hafa tekjur í formi sölu á þjónustu svo og hvers konar styrkja.
Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.

Skráningarfrestur er til 14. september 2010.

 

Gerð verður grein fyrir skyldu þessara aðila til að reikna sér endurgjald, greiða í lífeyrissjóð og skila tryggingagjaldi. Rætt verður um uppgjör tekjuskattsstofns í þeim tilvikum er hlutaðeigandi aðila hlotnast tekjur af sölu eigin verka, styrkja til framleiðslu og eða sköpunar á verki. Eru þessar tekjur skilyrðislaust atvinnurekstrartekjur eða má telja þær fram sem einstaklingstekjur og hvaða afleiðingar hefur það? Hvaða gjöld má draga frá tekjunum við uppgjör tekjuskattstofnsins? Er kostnaður vegna heimaaðstöðu frádráttarbær og ef svo er hvaða skilyrðum þarf aðstaðan að fullnægja svo að ekki þurfi að hafa áhyggjur af frádrættinum?

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Ásmundur G. Vilhjálmsson, lögmaður hjá Pricewaterhousecoopers og aðjúnkt í skattarétti við viðskiptafræðideild HÍ


Hvenær:

Mið. 22. sept. kl. 9:00-12:00

 

 

Verð: 10.500 kr.

 

[Til baka]