Greining ársreikninga
Námskeiðið er ætlað þeim sem þurfa að rýna í ársreikninga fyrirtækja og gera ýmsar greiningar á þeim. Hér er kafað dýpra í ársreikninga heldur en á námskeiðinu Lestur ársreikninga, en þetta námskeiðið er þó sjálfstætt. Reiknað er með að þátttakendur séu læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Frábært námskeið sem mæla má með við aðra, ekki hvað síst á þessum tímum”
- ”Mjög gott námskeið”
- ”Bjarni er fyrirtaks kennari og eins og áður fer maður fróðari af námskeiðum hans”
Skráningarfrestur er til 11. október 2010.
Gerð verður grein fyrir helstu greiningaraðferðum s.s. láréttri og lóðréttri greiningu (innan fyrirtækis og milli fyrirtækja) en megináherslan verður á kennitölugreiningu. Unnið verður með tvo nýlega ársreikninga.
Veitið athygli: Þeir sem sækja bæði námskeiðin Lestur ársreikninga og Greining ársreikninga fá 20% afslátt af hinu síðara.
|
|
Kennsla / umsjón:
Bjarni Frímann Karlsson, lektor í viðskiptafræðideild HÍ
Hvenær: Mán. 18. og þri. 19. okt. kl. 9:00-12:00
Verð: 29.300 kr.
|