Garðaúrgangur í stórum stíl - mögulegar leiðir til staðbundinnar jarðgerðar
í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) og Horticum menntafélag.
Námskeið fyrir starfsfólk og stjórnendur hjá sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sem hyggja á jarðgerð eða eru nú þegar komnir af stað. Námskeiðið hentar einnig kjörnum fulltrúum nefnda sem fjalla um málefnið í sínu sveitarfélagi. Kennsla fer að mestu fram í fyrirlestraformi en gert er ráð fyrir sýnikennslu á útisvæði (fatnaður í samræmi við veður). Hádegisverður er innifalinn í námskeiðinu.
Jarðgerð á lífrænum garðaúrgangi hefur aukist hjá sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum undanfarin ár og hefur árangur víða verið góður. Tækifæri til að efla slíka starfsemi eru víða en nauðsynlegt er að fræða starfsfólk og stjórnendur um undirbúninginn, vinnsluna og afurðina til að ná enn betri árangri. Á námskeiðinu verður sérstaklega fjallað um mögulegar leiðir til að koma á markvissri staðbundinni jarðgerð þar sem unnið er með hráefni af eigin svæðum sem og nýtingarmöguleikum tilbúinnar moltu sem afurðar. Farið verður yfir kosti og galla sem jarðgerðinni fylgja þ.m.t. kostnaðarþætti.
Undirbúningur jarðgerðar: - Mæling hráefnis
- Mismunandi flokkar efnis
- Hentugt svæði og aðstaða
- Starfsleyfi
- Tækjaþörf
Vinnslan:- Aðferðir (múgar, belgir ofl.)
- Fræðsla og þjálfun starfsmanna sem sinna jarðgerð
- Vinnulag og ferli vinnslu
- Gæðaeftirlit
Afurðin:- Eiginleikar moltunnar
- Notkun moltu til ræktunar og gróðurbóta
- Fræðsla starfsmanna sem vinna með moltu
- Hagræn gildi og kostnaðarþættir
- Umhverfislegur ávinningur
|
|
Kennsla / umsjón:
Baldur Gunnlaugsson, skrúðgarðyrkjumeistari og garðyrkjutæknir, Heimir Janusarson, skrúðgarðyrkjufræðingur, Björn Guðbrandur Jónsson, líffræðingur og Axel Knútsson, skrúðgarðyrkjumeistari og yfirverkstjóri í Laugardal.
Hvenær: Námskeiðið verður haldið á hausmisseri 2010. Áhugasamir er hvattir til að skrá sig en nánari upplýsingar um tímasetningu verður ákveðin með a.m.k. 10 daga fyrirvara.
Verð: 19.800 kr.
|