Verk- og tæknifræði, arkitektúr og umhverfi


Endurmenntun leggur metnað sinn í að bjóða fagleg, starfstengd námskeið á sem flestum sviðum atvinnulífsins. Fjölbreytnin er mikil og margir starfshópar sækja stærstan hluta sinnar símenntunar til Endurmenntunar. Það er markmið okkar að mæta þörfum fólks á öllum sviðum starfstengdrar símenntunar en því markmiði verður aðeins náð með góðu og gagnvirku samstarfi við félagasamtök, atvinnulífið og stofnanir ríkisins.


Endurmenntun vinnur nú í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ), Tæknifræðingafélag Íslands (TFÍ), Arkitektafélag Íslands (AÍ) og Félag umhverfisfræðinga á Íslandi (FUMÍ) að gerð námskeiða fyrir veturinn 2010-2011. Flest námskeiðin eru hugmyndir og ábendingar sem komið hafa fram í fræðslukönnunum félaganna og Endurmenntunar.


Við viljum biðja áhugasama um að fylgjast vel með vefnum okkar eða skrá sig á póstlista Endurmenntunar til að fá sendar upplýsingar um námskeið á sviði verk- og tæknifræði, arkitektúr og umhverfis. Skráning á póstlista fer fram hér.

 

 


ÍST 66:2008 Kólnunartölur og varmatap húsa

Hvenær: 29.09.2010 - 29.9.2010

Í samstarfi við ENSÍM (Endurmenntunarnefnd og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV).


Námskeiðið er ætlað tæknimönnum.

Skráningarfrestur er til 21. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Þrívíddarhönnun í SketchUp

Hvenær: 04.10.2010 - 6.10.2010

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja rissa upp þrívíða mynd af hugmynd sinni á skömmum tíma, hvort sem hún er á sviði hluta-/innréttingahönnunar, arkitektúrs eða skipulags.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með fartölvur á námskeiðið og mús.

Skráningarfrestur er til 25. september.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sjálfbærar ofanvatnslausnir

Hvenær: 15.10.2010 - 15.10.2010

Í samstarfi við ENSÍM (Endurmenntunarnefnd og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ og SV).


Námskeiðið er ætlað tæknimönnum á sviði fráveitu- og gatnahönnunar, landslagsarkitektum, arkitektum og rekstraraðilum gatna.

Skráningarfrestur er til 7. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Óvissustjórnun - verkfæri í verkefnastjórnun (e. Risk Management)

Hvenær: 26.10.2010 - 9.11.2010

Námskeiðið á sérstaklega erindi til verk- og tæknifræðinga og annarra tæknimanna sem starfa sem verkefnisstjórar, gæðastjórar sem og annarra stjórnenda (bakhjarla) sem hafa nokkra reynslu af vinnu í verkefnum og þekkja vel aðferðafræði verkefnastjórnunar.

Skráningarfrestur er til 18. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Þættir í hönnun og öryggi leiksvæða

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Horticum menntafélag og teiknistofuna Storð.

Námskeið fyrir embættismenn, nefndarfulltrúa og stjórnendur hjá sveitarfélögum sem koma að rekstri leiksvæða í sínu sveitarfélagi og aðra rekstraraðila leiksvæða hjá stofnunum og fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Garðaúrgangur í stórum stíl - mögulegar leiðir til staðbundinnar jarðgerðar

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

í samstarfi við Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) og Horticum menntafélag.

Námskeið fyrir starfsfólk og stjórnendur hjá sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum sem hyggja á jarðgerð eða eru nú þegar komnir af stað. Námskeiðið hentar einnig kjörnum fulltrúum nefnda sem fjalla um málefnið í sínu sveitarfélagi.
Kennsla fer að mestu fram í fyrirlestraformi en gert er ráð fyrir sýnikennslu á útisvæði (fatnaður í samræmi við veður). Hádegisverður er innifalinn í námskeiðinu.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

VectorWorks 2 - BIM -

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Framhald af VectorWorks 1. Hentar einstaklingum sem hafa notað VectorWorks í einhvern tíma og vilja læra meira um þrívíða hönnun forritsins. Byggð eru þrívíddar líkön af byggingu. Grunnmyndir, sneiðingar, útlitsteikningar og þrívíddarmyndir eru síðan búnar til úr líkaninu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með fartölvur á námskeiðið. Innifalið er 30 daga reynsluútgafa af VectorWorks 2009. Námskeiðið nýtist ennig notendum með eldri útgáfu af VectorWorks.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig