|
 | Google í skólastarfi
Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.
|
|
|
|
| Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda
Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.
Skráningarfrestur er til 16. september 2010.
|
|
|
|
 | Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Skráningarfrestur er til 22. september 2010.
|
|
|
|
| Hugarkort: Verkfæri kennarans
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:
- Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
|
|
|
|
| Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi
Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta: - Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
|
|
|
|
| Íslenski þroskalistinn
Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
|
|
|
|
| Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
|
|
|
|
| Kvíði barna og unglinga
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun. Takmarkaður sætafjöldi.
Skráningarfrestur er til 21. október 2010.
|
|
|
|
| Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.
Ætlað kennurum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:
- ”Mjög áhugavert námskeið. Kennara tókst mjög vel að koma námsefninu til skila. Skemmtilegt!”
- ”Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið.”
- ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”
|
|
|
|
 | Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi
Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.
|
|
|
|
| Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli
Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.
|
|
|
|
| Talnalykill: Staðal- og markbundið próf í stærðfræði
Talnalykill er greinandi próf í stærðfræði fyrir nemendur í 1. - 7. bekk grunnskóla. Námskeiðið er ætlað bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Þátttaka í námskeiði er forsenda fyrir notkun prófsins.
|
|
|
|