Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda

Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.

Skráningarfrestur er til 16. september 2010.

 

Oftast eru samskipti foreldra og kennara í góðum farvegi og fara að mestu fram á reglulegum foreldrafundum og við aðrar uppákomur í skólanum. Þegar allt gengur vel hjá barni er ekki sérstök þörf fyrir frekari samskipti en þegar upp koma erfiðleikar hjá barni er meiri þörf á samvinnu.

Það getur skipt sköpum fyrir barn og framtíð þess að samskipti foreldra og kennara séu góð þegar taka þarf á viðkvæmum og erfiðum málum. Kennarar þurfa oft að takast á við viðkvæm og erfið mál í starfi sínu sem lúta að uppeldi og stuðningi auk beinnar kennslu. Það getur bæði verið kvíðavænlegt og flókið fyrir kennara að taka á slíkum málum, en góð samvinna við foreldra, sem byggir á trausti og sameiginlegum skilningi, getur gert gæfumuninn.
Því miður nást ekki alltaf jákvæð og uppbyggjandi samskipti milli aðila og geta þau einkennst af neikvæðni, ásökunum og leit að sökudólg. Samskipti sem þannig fara fram leiða síður til jákvæðra lausna fyrir barnið og skólagöngu þess.
Það er því mjög mikilvægt að forðast að lenda í þessum farvegi og hægt er að læra ákveðnar leiðir til þess að afstýra því. Með lausnamiðuðu vinnulagi (Solution Focused) og áherslum hefur náðst góður árangur í skólastarfi víða um heim. Litið er svo á að foreldrar séu mikilvæg auðlind inn í skólastarfið þegar verið er að kljást við erfiðleika og því mikilvægt að leggja markvissa áherslu og vinnu í að ná góðu samstarfi við þá.
Jákvæð og lausnamiðuð samskipti milli aðila er alltaf kostur fyrir barn sem á við náms- og/eða hegðunarerfiðleika að etja og fyrir kennara skiptir miklu máli að vandinn í skólanum sé leystur sem fyrst. Það þarf tíma til að vinna að lausn erfiðra mála en það getur verið tímasparnaður að sameina krafta þeirra aðila sem hafa með barnið að gera.

Á námskeiðinu verður kennd jákvæð og uppbyggjandi samtalsaðferð og vinnulag í viðkvæmum málum. Lausnamiðuð nálgun er aðferð sem kennari getur nýtt til að byggja upp góð samskipti og aukna samvinnu við foreldra.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Helga Þórðardóttir, félagsráðgjafi og fjölskylduþerapisti


Hvenær:

Fös. 24. sept. 13:00 - 18:00 og lau. 25. sept. kl. 9:00 - 14:30

 

 

Verð: 24.900 kr.

 

[Til baka]



Google í skólastarfi

Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.

 

 

Skrá mig

Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda

Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.

Skráningarfrestur er til 16. september 2010.

 

 

Skrá mig

Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna

Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.

Skráningarfrestur er til 22. september 2010.

 

 

Skrá mig

Hugarkort: Verkfæri kennarans

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur


Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

 

 

Skrá mig

Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi

Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

 

 

Skrá mig

Íslenski þroskalistinn

Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.

Skráningarfrestur er til 13. október 2010.

 

 

Skrá mig

Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.

Skráningarfrestur er til 13. október 2010.

 

 

Skrá mig

Kvíði barna og unglinga

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans


Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun.
Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 21. október 2010.

 

 

Skrá mig

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.


Ætlað kennurum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:

  • ”Mjög áhugavert námskeið. Kennara tókst mjög vel að koma námsefninu til skila. Skemmtilegt!”
  • ”Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið.”
  • ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”

 

 

Skrá mig

Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi

Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum.
Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.

Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.

 

 

Skrá mig

Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli

Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.

 

 

Skrá mig

Talnalykill: Staðal- og markbundið próf í stærðfræði

Talnalykill er greinandi próf í stærðfræði fyrir nemendur í 1. - 7. bekk grunnskóla. Námskeiðið er ætlað bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Þátttaka í námskeiði er forsenda fyrir notkun prófsins.

 

 

Skrá mig