|
 |
Google í skólastarfi
Hvenær:
20.09.2010 - 27.9.2010
Google hefur verið í framvarðarsveit við að þróa tæki og tól til opinna samskipta- og samvinnuhátta. Sett hefur verið saman verkfærakista, sem stendur menntastofnunum til boða endurgjaldslaust. Í verkfærakistunni er póstkerfi, skrifstofupakki og vefsíðukerfi. Verkfærin mynda saman grunn fyrir aukin samskipti, hraðari vinnubrögð og aðkomu fleiri aðila í námi og starfi. Upplýsingakerfi Google hvetur til gagnvirkra samskipta skólastjórnenda, kennara, nemenda og foreldra.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið. Skráningarfrestur er til 13. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Að byggja upp árangursríka samvinnu við foreldra leik- og grunnskólanemenda
Hvenær:
24.09.2010 - 25.9.2010
Á námskeiðinu, sem ætlað er leik- og grunnskólakennurum, gefst áhugasömum tækifæri til að auka hæfni sína í lausnamiðuðu vinnulagi með það að markmiði að byggja upp góð samskipti og auka samvinnu við foreldra. Námskeiðið hlaut mikið lof þátttakenda í vor.
Skráningarfrestur er til 16. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna
Hvenær:
30.09.2010 - 1.10.2010
Námskeiðið er ætlað starfsfólki leikskóla, s.s. leikskólakennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun, þ.e. leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni barna á leikskólaaldri. Í fyrri hluta námskeiðsins verður fjallað um mikilvægi traustra tengsla við ung börn, aðferðir til að skipuleggja umhverfið og deildarstarfið þannig að það ýti undir jákvæða hegðun, skýr fyrirmæli og reglur, leiðréttandi samskipti og fjölbreyttar leiðir til að styrkja viðeigandi hegðun. Í seinni hlutanum verður fjallað um aðferðir til að kenna börnum vinafærni, tilfinningafærni, reiðistjórnun og lausnamiðaða leikni.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Hugarkort: Verkfæri kennarans
Hvenær:
13.10.2010 - 13.10.2010
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:
- Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Hugarkort: Verkfæri kennarans - Námskeið í fjarfundi
Hvenær:
20.10.2010 - 20.10.2010
Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi. Skráning fer fram á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum og hjá Endurmenntun í síma 525-4444.
Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta: - Eigin undirbúning fyrir kennslu
- Skipulagningu kennslu
- Samvinnu og aðstoð við nemendur
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Íslenski þroskalistinn
Hvenær:
21.10.2010 - 21.10.2010
Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og uppeldisgreinum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 22.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Smábarnalistinn: Staðlaður þroskalisti handa ungbörnum
Hvenær:
22.10.2010 - 22.10.2010
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem starfar með börnum á leikskólaaldri og hefur lokið réttindanámskeiði í Íslenska þroskalistanum. Smábarnalistinn er frumsaminn og staðlaður þroskalisti til að meta mál- og hreyfiþroska ungbarna á aldrinum 15 til 38 mánaða. Listinn er sjálfstætt framhald af Íslenska þroskalistanum.
Skráningarfrestur er til 13. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Kvíði barna og unglinga
Hvenær:
29.10.2010 - 29.10.2010
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans
Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa með börnum, t.d. grunn- og leikskólakennurum, sérkennurum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíðahegðun. Takmarkaður sætafjöldi.
Skráningarfrestur er til 21. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð
Hvenær:
01.11.2010 - 2.11.2010
Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.
Ætlað kennurum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu í vor:
- ”Mjög áhugavert námskeið. Kennara tókst mjög vel að koma námsefninu til skila. Skemmtilegt!”
- ”Mjög gagnlegt og skemmtilegt námskeið.”
- ”Frábært námskeið og frábær kennari - væri til í að taka það aftur á morgun.”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Árangur, jákvæðni og vellíðan í skólastarfi
Hvenær:
08.11.2010 - 9.11.2010
Námskeiðið byggir á þremur stoðum; kenningum í jákvæðri sálfræði, aðferðum markþjálfunar og gjörhygli. Þessar stoðir verða tengdar einstaklingnum, vinnustaðnum og hópum innan leik- og grunnskóla. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast færni til að nýta sér nýjar aðferðir sem stuðlað geta að auknum árangri og jákvæðari samskiptum í skólastarfi.
Námskeiðið er blanda af stuttum fyrirlestrum, umræðum, verkefnum og hagnýtri þjálfun.
Skráningarfrestur er til 29. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Jákvæð agastjórnun: Leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi
Hvenær:
18.11.2010 - 19.11.2010
Námskeiðið er ætlað starfsfólki grunnskóla, s.s. kennurum, sérkennurum, þroskaþjálfum og stuðningsfulltrúum. Á námskeiðinu verður fjallað um jákvæða agastjórnun og leiðir til að skapa hvetjandi námsumhverfi fyrir nemendur á grunnskólaaldri. Gefið verður yfirlit yfir raunprófaðar aðferðir til að fyrirbyggja og draga úr erfiðri hegðun samhliða því að festa jákvæða hegðun og líðan í sessi. Fjallað verður um lausnamiðað viðhorf, góðan liðsanda, skipulag, væntingar, samskipti og fjölbreyttar leiðir til að hvetja nemendur til að sýna viðeigandi hegðun.
Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Skimun erfiðleika í stærðfræði með Talnalykli
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Ætlað þeim sem öðlast hafa réttindi til að nota Talnalykil með tilskildu námskeiði s.s. bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Réttindanámskeið í notkun Talnalykils eru haldin reglulega hjá EHÍ.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Talnalykill: Staðal- og markbundið próf í stærðfræði
Hvenær:
Dagsetning kemur síðar
Talnalykill er greinandi próf í stærðfræði fyrir nemendur í 1. - 7. bekk grunnskóla. Námskeiðið er ætlað bekkjarkennurum, sérkennurum og sálfræðingum. Þátttaka í námskeiði er forsenda fyrir notkun prófsins.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|