Sérsniðin námskeið fyrir fyrirtæki og stofnanir  


Á undanförnum árum hefur fræðslustarfsemi innan fyrirtækja og opinberra stofnana þróast og vaxið hratt. Þetta birtist ekki síst í starfsemi hinna fjölmörgu "fyrirtækjaskóla" sem settir hafa verið á laggirnar. Oft og tíðum hentar fyrirtækjum og stofnunum betur að sinna sjálf fræðslu starfsmanna sinna.  

Til að koma til móts við þessar þarfir hefur Endurmenntun Háskóla Íslands boðið fyrirtækjum og stofnunum sérsniðin námskeið. Þessi þjónustuþáttur í starfsemi Endurmenntunar hefur vaxið mikið og sífellt hraðar undanfarin misseri, sem staðfestir breytt landslag í fræðslu- og símenntunarmálum.  

Sérsniðin námskeið Endurmenntunar eru nær undantekningarlaust námskeið sem hafa sannað sig rækilega meðal annarra opinna námskeiða hjá Endurmenntun. Þau eru haldin af færustu sérfræðingum á viðkomandi sviði, ýmist kennurum úr Háskóla Íslands eða sérfræðingum og stjórnendum víðs vegar að úr atvinnulífinu, en Endurmenntun hefur sterka sérstöðu að þessu leyti.  Þessi námskeið hafa fengið framúrskarandi umsögn tuga eða jafnvel hundruða þátttakenda, og uppfylla alla gæðastaðla sem við gerum til styttri námskeiða. Við getum því full sjálfstrausts mælt með okkar námskeiðum.  

Ávinningur sérsniðinna námskeiða fyrirtækja og stofnana felst að minnsta kosti í þessu:  
Hentugleiki
Námskeið fer fram í aðstöðu á vegum fyrirtækisins eða stofnunarinnar, og á tíma sem best hentar.  

Aðlögun náms að starfsemi
Kennari námskeiðsins reynir eftir föngum að sníða efnistök og áherslur að viðkomandi starfsemi. Umræður milli kennara og þátttakenda um efnisþætti námskeiðs verða markvissari þar sem þær snúa beint að verkefnum og starfsemi fyrirtækisins; þekkingin er strax sett í samhengi við raundæmi úr veruleika starfsfólksins.  

Lægri kostnaður
Endurmenntun gerir fast tilboð miðað við tímafjölda og fjölda þátttakenda. Ekkert álag vegna húsnæðis er reiknað í verð, þannig að útreiknaður kostnaður fyrir hvern þátttakanda er töluvert lægri en ef þátttakendur borguðu fullt einstaklingsgjald á opnu námskeiði Endurmenntunar.  

Vottun
Allir þátttakendur sérsniðinna námskeiða fá skírteini Endurmenntunar til staðfestingar þátttöku, en kannanir hafa sýnt að jafnt almennt starfsfólk sem stjórnendur meta gildi skírteina Endurmenntunar, enda hefur stofnunin um árabil verið fyrsti valkostur fagfólks hvað símenntun varðar.  

Frekari upplýsingar um sérsniðin námskeið veitir Ragna Haraldsdóttir verkefnastjóri.