Samningagerð og "Samningahagfræði" - Hvernig tryggjum við hagsmuni okkar með samningum?

Námskeiðið er ætlað öllum sem vinna við samningagerð, svo sem verkkaupum, verktökum, framkvæmdaaðilum, ráðgjöfum, fasteignasölum, lögfræðingum, verkfræðingum og öðrum sem áhuga hafa á gerð samninga.

Skráningarfrestur er til 25. október 2010.

 

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig æskilegt er að gera samninga úr garði þannig að þeir tryggi í raun þá hagsmuni sem þeim er ætlað að tryggja. Fjallað verður um uppbyggingu samninga, orðalag þeirra, helstu atriði sem hafa ber í huga til að tryggja að samningar hafi tilætluð áhrif og hvernig unnt er að skapa verðmæti með samningum. Í því sambandi verður meðal annars fjallað um "góð" og "vond" samningsákvæði og hvernig greina megi þar á milli. Þá verður fjallað um áhrif ójafnræðis í upplýsingum sem samningsaðilar búa yfir, hættuna á því að aðilar misnoti aðstöðu sína við efndir samnings og hvernig leysa má úr vandræðum sem geta skapast við þær kringumstæður. Einnig verður fjallað um hvernig bregðast má við hættunni á því að samningsaðili verði of háður gagnaðila sínum og efndum samnings. Umfjöllunin um framangreind atriði lýtur einkum að því sem nefna mætti "hagfræðina" á bakvið samninga og nauðsyn þess að skapa réttar hvatir fyrir samningsaðila til að standa við skuldbindingar sínar.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Viðar Lúðvíksson, hrl. og einn eigandi lögmannsstofunnar Landslög


Hvenær:

Þri. 2. nóv. kl. 16:15-19:00 og mið. 3. nóv. kl. 9:00-12:00 (2x)

 

 

Verð: 18.800 kr.

 

[Til baka]



Lagaenska (e. Legal English) The Practice of Law & Contracts

Ætlað lögfræðingum, lögmönnum og dómurum sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum lögfræðiensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku.

Kennslubókin International Legal English Student's Book: A Course for Classroom or Self-Study Use (Cambridge) er innifalin í námskeiðinu.
Námskeiðið fer fram á ensku.
This course is designed for upper-intermediate learners who would like to improve their knowledge of and fluency in two areas of legal English: the practice of law and contracts. Learners should be students of law, or practicing in a legal profession.

 

 

Skrá mig

Lagaenska - framhald (e. Legal English)
Negotiable Instruments, Secured Transactions & Debitor-Creditor

Hér er haldið áfram með lagaensku frá námskeiðinu The Practice of Law & Contracts. Námskeiðið er ætlað lögfræðingum, lögmönnum og dómurum sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum lögfræðiensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun.

Kennslubókin International Legal English Student's Book: A Course for Classroom or Self-Study Use (Cambridge) er innifalin í námskeiðinu. Námskeiðið fer fram á ensku.

Skráningarfrestur er til 25. október
Registration deadline is October 25th.

 

 

Skrá mig

Samningagerð og "Samningahagfræði" - Hvernig tryggjum við hagsmuni okkar með samningum?

Námskeiðið er ætlað öllum sem vinna við samningagerð, svo sem verkkaupum, verktökum, framkvæmdaaðilum, ráðgjöfum, fasteignasölum, lögfræðingum, verkfræðingum og öðrum sem áhuga hafa á gerð samninga.

Skráningarfrestur er til 25. október 2010.

 

 

Skrá mig