Disill 4 - grunnnámskeið
Í samstarfi við Atómstöðina
Grunnkennsla á Disill 4 vefumsjónarkerfinu frá Atómstöðinni. Hentar öllum þeim sem koma að vefumsýslu vefja sem byggja á Disill. Hentar einnig þeim sem eru að nota eldri útgáfur kerfisins sbr. Disill 3.6 eða Summit vefumsjónarkerfið. Mælt er með því að þátttakendur hafi með sér fartölvu með þráðlausu netkorti á námskeiðið.
Farið verður í eftirfarandi þætti á námskeiðinu:
- Almenn kynning á Disill og hvernig kerfið er uppbyggt og grunnvirkni.
- Veftré - Stofna síður og aðrar aðgerðir í veftré.
- Grunnþættir leitarvélabestunar.
- Innsetning efnis ásamt notkun Text Editor.
- Farið í uppsetningu á síðum og kynntar góðar vinnureglur um frágang efnis.
- Media Library/mynda og skjalasafn og virkni þess við aðrar kerfiseiningar sbr. text editor og article manager.
- Farið yfir frágang mynda/ forvinnsla og innsetning.
- Unnið með Article Manager, frétta og greinakerfið.
- Spurningar og svör eins og tími gefst til.
|
|
Kennsla / umsjón:
Sævar Örn Sævarsson frá Atómstöðinni.
Hvenær: Námskeiðið er 3 klst. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig. Starfsmaður EHÍ hefur samband við alla skráða þátttakendur um leið og dagsetning liggur fyrir með að lágmarki 10 daga fyrirvara.
Verð: 15.900 kr.
|