Hugbúnaður
Endurmenntun
leggur metnað sinn í að mæta þörfum fólks á öllum sviðum starfstengdrar
símenntunar en því markmiði verður aðeins náð með góðu og gagnvirku
samstarfi við atvinnulífið og stofnanir ríkisins. Fjölbreytnin er mikil
og margir starfshópar sækja stærstan hluta sinnar símenntunar til
Endurmenntunar.
Endurmenntun
hefur verið í fararbroddi í framboði sértækra hugbúnaðarnámskeiða og
notið þess að eiga greiðan aðgang að framúrskarandi kennurum sem koma
víðs vegar að. Unnið er að framboði 2010/2011 með það að markmiði að
bjóða fjölbreytt námskeið á viðráðanlegum kjörum.
Við
viljum því biðja áhugasama um að fylgjast vel með vefnum okkar eða skrá
sig á póstlista Endurmenntunar til að fá sendar upplýsingar um námskeið
á sviði hugbúnaðar. Skráning á póstlista fer fram hér.
Áhugavert námskeið á meistarastigi:
Samskipti manns og tölvu - Umsóknarfrestur til 16. ágúst