Fötlunarfræði: Helstu hugtök og sjónarhorn

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands


Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á fötlunarfræðum, málefnum fatlaðs fólks og vilja kynnast nýjum félagslegum og menningarlegum skilningi á fötlun.
Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

 

Undanfarna áratugi hefur þróast nýr félagslegur skilningur á fötlun þar sem áhersla er á að skilja þátt umhverfis og menningar í að skapa og viðhalda fötlun. Fötlunarfræði hefur verið einn helsti vettvangur þessarar þróunar ásamt hreyfingu fatlaðs fólks víða um heim. Markmið námskeiðsins er að kynna þátttakendum þessar nýju hugmyndir sem ögra hinum hefðbundna skilningi á fötlun sem einstaklingsbundnum galla.

Á námskeiðinu verður fjallað um sögulega þróun hugmynda um fötlun og þá hugmyndafræði sem hefur mótað líf og aðstæður fatlaðs fólks, meðal annars hugmyndafræðina um eðlilegt líf og samfélagsþátttöku, og hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð. Fötlunarfræði verður kynnt og fjallað um þau mismunandi félagslegu sjónarhorn á fötlun sem þar hafa þróast. Rætt verður um tengsl fötlunarrannsókna og fatlaðs fólks og hagsmunasamtaka þeirra, og rýnt í hvaða þýðingu fræðin geta haft í baráttu fatlaðs fólks fyrir fullum mannréttindum.

Þátttakendum námskeiðsins er boðið að sækja málstofu um fötlunarfræði (með 4-5 fyrirlestrum) á Þjóðarspeglinum, ráðstefnu um rannsóknir í félagsvísindum, þann 29. október 2010, og taka þátt í umræðum að fyrirlestrum loknum.

Athugið við skráningu!

Skipuleggjendur námskeiðsins leggja áherslu á að það sé aðgengilegt fyrir alla og lagað að þörfum þátttakenda. Því biðjum við þig um að taka fram, í athugasemdareit við rafræna skráningu eða við skráningu í síma, ef eitthvað af neðangreindu á við um þig:

  • Þarf táknmálstúlk
  • Þarf rittúlk
  • Þarf námsgögn á stækkuðu letri eða blindraletri
  • Þarf námsgögn á auðlesnum texta
  • Kem með aðstoðarmann
  • Nota hjólastól
  • ... eða annað sem skiptir máli að skipuleggjendur viti af.

 

Skráning

 

  

 

Kennsla / umsjón:

Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands


Hvenær:

Mán. 11. okt. og fim. 14. okt. kl. 16 - 19, lau. 16. okt. kl. 9 - 12, mán. 25. okt. og fim. 28. okt, kl. 16 - 19 og lau. 30. okt. kl. 9 - 12 (6x)

 

 

Verð: 38.900 kr.

 

[Til baka]


Velgengni - stjórnaðu lífi þínu

Námskeiðið er í samvinnu við Iðjuþjálfafélag Íslands og er ætlað iðjuþjálfum.

 

Barnavernd: Vinnulag og samstarf

Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands

 

Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

 

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.

 

Lausnamiðuð nálgun

 

Fötlunarfræði: Helstu hugtök og sjónarhorn

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

 

Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla

 

Eden hugmyndafræðin - spennandi valkostur í öldrunarþjónustu.
Eden stuðlar að ánægju íbúa og starfmanna

 

Stofnfrumur í heilbrigði og sjúkdómum

Í samstarfi við Félag lífeindafræðinga.

 

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð - Framhaldsnámskeið

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.

 

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

 

Ályktandi tölfræði í SPSS

 

Gagnavinnsla í SPSS

 

Lýsandi tölfræði í SPSS