Gagnavinnsla í SPSS
Á þessu námskeiði er áherslan ekki á tölfræðigreiningu heldur stillingar í SPSS-forritinu, undirbúning gagnavinnslu, innslátt gagna, skilgreiningu gagna, mótun vinnuumhverfis og framsetningu niðurstaðna. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir byrjendur í forritinu og er gagnlegur undanfari að SPSS-námskeiðum í lýsandi og ályktandi tölfræði. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa notað forritið lítið eða í afmarkaðri úrvinnslu.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.
Á námskeiðinu er farið í uppbyggingu SPSS-forritsins og hvernig það er notað í gagnavinnslu.
Farið er í: - Vinnusvæði og skrár í forritinu.
- Hjálp í forritinu við úrvinnslu gagna og túlkun niðurstaðna.
- Mótun vinnuumhverfis (t.d. að búa til nýja valseðla í forritinu).
- Gerð og útlit á töflum og myndritum.
- Innslátt gagna og vinnu í breytum.
- Vinnu í gagnaskrá (t.d. sameiningu skráa).
- Undirbúning tölfræðigreiningar.
Gefið er yfirlit einstakra efnisþátta í stuttum inngangsfyrirlestrum og verkefni eru síðan unnin, með aðstoð kennara, í beinu framhaldi af kynningu tiltekins efnis.
Ef tekin eru tvö eða öll þrjú SPSS námskeiðin á sama misseri er veittur 10% afsláttur af öðru og 20% afsláttur af þriðja námskeiðinu.
|
|
Kennsla / umsjón:
Einar Guðmundsson, prófessor við HÍ og Árni Kristjánsson, lektor við HÍ
Hvenær: Námskeiðið er 7 klst. og er kennt frá kl. 9:00 - 17:00. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig. Þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð verður dagsetning tilkynnt, með a.m.k. 10 daga fyrirvara.
Verð: 32.500 kr.
|