Ályktandi tölfræði í SPSS
Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að nota helstu ályktandi tölfræði í SPSS. Námskeiðið hentar þeim sem hafa notað forritið lítið eða í afmarkaðri úrvinnslu. Gefið er yfirlit einstakra efnisþátta í stuttum inngangsfyrirlestrum og verkefni síðan unnin með aðstoð kennara í beinu framhaldi af kynningu tiltekins efnis.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.
Gefið er yfirlit um ályktandi tölfræði í SPSS og lögð áhersla á að tengja saman eiginleika breyta, tilrauna- eða rannsóknasnið og viðeigandi ályktandi tölfræði.
Megináhersla í námskeiðinu er á eftirfarandi aðferðir: - T-próf
- Úrtaksbundin próf
- Dreifigreining (Analysis of variance)
- Aðhvarfsgreining (Regression analysis)
- Þáttagreining (Factor analysis)
Við kynningu á þessum aðferðum og í verkefnum er lögð áhersla á hvar tilteknar aðgerðir eru gerðar í SPSS, hvernig tölfræði er valin eftir sérkennum gagnasafns (rannsóknarsnið) og hvernig niðurstöður eru túlkaðar í keyrsluskrá.
Ef tekin eru tvö eða öll þrjú SPSS námskeiðin á sama misseri er veittur 10% afsláttur af öðru og 20% afsláttur af þriðja námskeiðinu.
|
|
Kennsla / umsjón:
Einar Guðmundsson, prófessor við HÍ og Árni Kristjánsson, lektor við HÍ
Hvenær: Námskeiðið er 7 klst. og er kennt frá kl. 9:00 - 17:00. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig. Þegar lágmarksfjölda þátttakenda hefur verið náð verður dagsetning tilkynnt, með a.m.k. 10 daga fyrirvara.
Verð: 32.500 kr.
|