Heilbrigðis- og félagssviði



Sjá einnig:


Námskeið á uppeldis- og kennslusviði




Velgengni - stjórnaðu lífi þínu

Hvenær: 09.09.2010 - 16.9.2010

Námskeiðið er í samvinnu við Iðjuþjálfafélag Íslands og er ætlað iðjuþjálfum.


Námskeiðið skiptist í þrjá hluta. I fyrsta hluta setja þátttakendur markmið fyrir sjálfan sig, fjölskyldu, heimili og starf. Í öðrum hluta er farið yfir markmiðin, rætt um teymisvinnu og stjórnun og starf í teymum. Þátttakendur fá heimaverkefni að safna umsögnum frá samstarfsaðilum. Í þriðja hluta verða svo umsagnir ræddar og framhald verður á umfjöllun um teymisvinnu.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Barnavernd: Vinnulag og samstarf

Hvenær: 23.09.2010 - 26.11.2010

Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands


Markmið námsins er að efla fræðilega og faglega þekkingu þátttakenda á einkennum og afleiðingum vanrækslu og ofbeldis á börn, starfsháttum barnaverndarnefnda og þeim úrræðum sem þær geta veitt börnum og fjölskyldum þeirra. Lögð verður áhersla á að kynna þau lög sem unnið er eftir og samstarf barnaverndarnefnda við aðra sem sinna málefnum barna.

Námskeiðið er hægt að taka í fjarnámi. Skráningarfrestur er til 30. ágúst 2010

Námskeiðið er einnig hægt að taka á meistarastigi, 10 ECTS eininga námskeið. Sjá frekari upplýsingar um það hér

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Hvenær: 25.09.2010 - 25.9.2010

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands


Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynna sér hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og notendastýrða persónulega aðstoð (NPA).
Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.

Skráningarfrestur er til 17. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Hvernig getur jákvæð sálfræði aukið vellíðan og heilbrigði?

Hvenær: 04.10.2010 - 5.10.2010

Námskeiðið, sem ætlað er fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, byggir á þremur stoðum; kenningum í jákvæðri sálfræði, aðferðum markþjálfunar og gjörhygli. Þessar stoðir verða tengdar einstaklingnum, vinnustaðnum og hópum innan skipulagsheildarinnar. Að námskeiði loknu hafa þátttakendur öðlast færni til að nýta sér nýjar aðferðir sem stuðla að auknum árangri og jákvæðum áhrifum í samskiptum við skjólstæðinga svo og aukinni vellíðan.

Námskeiðið er blanda af stuttum fyrirlestrum, umræðum, verkefnum og hagnýtri þjálfun.

Skráningarfrestur er til 27. september 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð

Hvenær: 05.10.2010 - 6.10.2010

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.


Námskeiðið er ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Lausnamiðuð nálgun

Hvenær: 11.10.2010 - 12.10.2010

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja horfa á lausnirnar frekar en vandamálin. Markmið og tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum árangursríka aðferð og ýmsar leiðir sem geta nýst fólki við að ná markmiðum sínum í lífi og starfi.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Mjög gott og gagnlegt námskeið”
  • ”Virkilega áhugavert og gott námskeið, góð kennslufræði og frábær kennari”
  • ”Takk fyrir flott og uppbyggjandi námskeið”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Fötlunarfræði: Helstu hugtök og sjónarhorn

Hvenær: 11.10.2010 - 30.10.2010

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands


Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á fötlunarfræðum, málefnum fatlaðs fólks og vilja kynnast nýjum félagslegum og menningarlegum skilningi á fötlun.
Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla

Hvenær: 12.10.2010 - 26.10.2010

Námskeiðið er einkum ætlað fólki er starfar á heilbrigðis- og félagssviði. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist færni og innsæi á bæði sálræna þætti og tilvistarleg áhrif áfalla á líf skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að nota til að hjálpa þolendum áfalla og aðstandendum sem þurfa að vinna með þungbæra lífreynslu.

Skráningarfrestur er til 4. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð - Framhaldsnámskeið

Hvenær: 16.11.2010 - 17.11.2010

Í samstarfi við geðsvið Landspítalans.


Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa sótt námskeið í samtalsaðferðum í hugrænni atferlismeðferð eða hafa góðan grunn.

Skráningarfrestur er til 8. nóvember.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

Hvenær: 20.11.2010 - 20.11.2010

Í samstarfi við Námsbraut í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands


Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa áhuga á að kynna sér Samninginn og þýðingu hans fyrir fatlað fólk á Íslandi.
Námskeiðið verður sent um fjarfundabúnað á Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar svo og á aðra staði sé þess óskað.
Fatlað fólk um allan heim hefur búið við skert mannréttindi, mismunun og fordóma. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er ætlað að breyta þessu og tryggja mannréttindi alls fatlaðs fólks; barna, ungmenna og fullorðinna.

Skráningarfrestur er til 12. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Ályktandi tölfræði í SPSS

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Markmið námskeiðsins er að gera þátttakendur færa um að nota helstu ályktandi tölfræði í SPSS. Námskeiðið hentar þeim sem hafa notað forritið lítið eða í afmarkaðri úrvinnslu. Gefið er yfirlit einstakra efnisþátta í stuttum inngangsfyrirlestrum og verkefni síðan unnin með aðstoð kennara í beinu framhaldi af kynningu tiltekins efnis.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Gagnavinnsla í SPSS

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Á þessu námskeiði er áherslan ekki á tölfræðigreiningu heldur stillingar í SPSS-forritinu, undirbúning gagnavinnslu, innslátt gagna, skilgreiningu gagna, mótun vinnuumhverfis og framsetningu niðurstaðna. Námskeiðið hentar mjög vel fyrir byrjendur í forritinu og er gagnlegur undanfari að SPSS-námskeiðum í lýsandi og ályktandi tölfræði. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa notað forritið lítið eða í afmarkaðri úrvinnslu.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Lýsandi tölfræði í SPSS

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Á námskeiðinu er farið yfir helstu lýsandi aðgerðir í SPSS og hentar námskeiðið mjög vel fyrir byrjendur í forritinu. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa notað forritið lítið eða í afmarkaðri úrvinnslu. Gefið er yfirlit einstakra efnisþátta í stuttum inngangsfyrirlestrum og verkefni síðan unnin með aðstoð kennara í beinu framhaldi af kynningu tiltekins efnis.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu með þráðlausi netkorti á námskeiðið.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig