Námsbrautir í fjarnámi sem hefjast á haustmisseri 2010


Leiðsögunám á háskólastigi


Kynning á fjarnámi hjá Endurmenntun má skoða hér að neðan á því formi sem kennslustundir í fjarnámi eru.
Smellið á myndina til að horfa.



Námskeið í fjarfundi


Kvasir, samtök fræðslumiðstöðva og Endurmenntun hafa undanfarin misseri átt í samstarfi um námskeiðahald í fjarfundi. Með því gefst íbúum á landsbyggðinni tækifæri til að sækja fjölbreytt framboð námskeiða Endurmenntunar í sinni heimabyggð. Námskeiðin eru send út í gegnum fjarfundarbúnað í rauntíma sem gerir öllum þátttakendum kleift að taka þátt í umræðum.

Ekki er lengur auglýst sérstaklega að námskeið sé í boði í fjarfundi. Best er að hafa samband við næstu fræðslumiðstöð og láta hana kanna möguleika á að sækja námskeið í fjarfundi. Hafa ber í huga að mikilvægt er að fyrirvari sé nægur og aldrei minni en 10 dagar.

Námskeið sem hafa nægilega þátttöku í fjarfundi verða auglýst á vefsíðum fræðslumiðstövanna.

Einnig er hægt að hafa samband beint við Endurmenntun og panta fjarfund ef fjarfundarbúnaður er til staðar.