|
 |
Að telja rétt fram
Hvenær:
22.09.2010 - 22.9.2010
Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem stunda sjálfstæðan rekstur sem fræðimenn, rithöfundar og listamenn svo og þeir sem annast um skattskil slíkra aðila. Námskeiðið hentar einnig öllum sem gera út að heiman og hafa tekjur í formi sölu á þjónustu svo og hvers konar styrkja. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 14. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Lestur ársreikninga
Hvenær:
27.09.2010 - 28.9.2010
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja geta lesið ársreikninga fyrirtækja og skilið þær upplýsingar sem þar er að finna um afkomu og efnahag. Athygli er einnig vakin á námskeiðinu Greining ársreikninga, þar sem kafað er dýpra í kennitölur og fleira. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Flott í alla staði, mjög ánægð með frammistöðu kennara, hefur greinilega mikinn áhuga sjálfur á viðfangsefninu og með metnað um að koma námsefninu vel til skila”
- ”Sérlega vel framsett, skýrt og sett í samhengi við raunveruleikann”
- ”Virkileg skýr og skemmtilegur kennari. Bara ef allir bókfærslukennarar kæmu efninu svona vel frá sér!”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Excel I - fjármál og rekstur
Hvenær:
27.09.2010 - 4.10.2010
Ætlað öllum þeim sem starfa með Excel í tengslum við fjármál og rekstur og langar að læra meira. Gert er ráð fyrir nokkurri færni í Excel, en farið er hratt yfir grunnatriði í upphafi námskeiðs. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 12 almennt.
Skráningarfrestur er til 17. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Virðismat fyrirtækja
Hvenær:
29.09.2010 - 13.10.2010
Ætlað fjármálastjórum fyrirtækja sem og öðrum stjórnendum auk endurskoðenda og annarra sem koma að fjármálum fyrirtækja. Námskeiðið hefur nú verið lengt um þriðjung til að koma að verklegum æfingum í Excel. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi meðferðis fartölvur í síðasta tíma. Ein. FLE: 12 Almennt.
Skráningarfrestur er til 21. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Fjármálaenska ( e. English for global finance& banking) - International Banking, World Economics & Investments
Hvenær:
06.10.2010 - 10.11.2010
Ætlað þeim sem hafa haldgóða enskukunnáttu en vilja efla þekkingu sína á hugtökum fjármálaensku og þjálfa orðaforða, hlustun, tal og ritun. Námskeiðið fer fram á ensku. This course is designed for intermediate learners and above who would like to improve their banking and financial English in the following three areas: International Banking, World Economics and Investments.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Excel - Veltitöflur (PivotTable)
Hvenær:
07.10.2010 - 7.10.2010
Ætlað þeim sem þekkja til Excel og vilja kynna sér sérstaklega og rækilega möguleika veltitaflna. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 4 Almennt
Skráningarfrestur er til 29. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Grunnþættir reksturs og fjármála
Hvenær:
07.10.2010 - 28.10.2010
Ætlað öllum millistjórnendum og sjálfstætt starfandi stjórnendum sem ekki hafa menntun á sviði viðskiptafræði og vilja ná betri tökum á helstu hugtökum og aðferðafræði reksturs og fjármála.
Skráningarfrestur er til 29. september 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Sjóðstreymi - einn vanmetnasti kafli ársreikningsins -
Hvenær:
08.10.2010 - 8.10.2010
Æskilegt er að þátttakendur kunni skil á helstu hugtökum reikningshalds og hafi grunnþekkingu í lestri ársreiknings.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Excel II - fjármál og rekstur
Hvenær:
12.10.2010 - 19.10.2010
Ætlað öllum sem þurfa að vinna með mikið af gögnum eða setja upp líkön sem byggjast á sjálfvirkni, þ.e. fyrir alla í rekstrar-, vöru- og fjármálastjórnun og aðra sem hafa notað Excel en langar að læra meira. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með eigin fartölvur með þráðlausu netkorti og Excel 2007 á námskeiðið. Ein. FLE: 12 Almennt.
Skráningarfrestur er til 4. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Greining ársreikninga
Hvenær:
18.10.2010 - 19.10.2010
Námskeiðið er ætlað þeim sem þurfa að rýna í ársreikninga fyrirtækja og gera ýmsar greiningar á þeim. Hér er kafað dýpra í ársreikninga heldur en á námskeiðinu Lestur ársreikninga, en þetta námskeiðið er þó sjálfstætt. Reiknað er með að þátttakendur séu læsir á ársreikninga, þ.e. hafi góðan skilning á eðli þeirra og formi. Ein. FLE: 6 Reikningsskil.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Frábært námskeið sem mæla má með við aðra, ekki hvað síst á þessum tímum”
- ”Mjög gott námskeið”
- ”Bjarni er fyrirtaks kennari og eins og áður fer maður fróðari af námskeiðum hans”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Skattlagning óheimillrar úttektar úr atvinnurekstri
Hvenær:
18.10.2010 - 18.10.2010
Ætlað fjármálastjórum í fyrirtæjum og þeim sem veita ráðgjöf um skattamál fyrirtækja eins og bókhöldurum og endurskoðendum.
Á undanförnum árum hefur orðið gríðarleg aukning á fjölda einkahlutafélaga og sameignarfélaga/samlagsfélaga. Er það skiljanlegt þar sem hagfeldara hefur verið skattalega að stunda atvinnurekstur í félagsformi en einstaklingsformi. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 8. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
|
Arðsemismat verkefna - reiknilíkön í Excel
Hvenær:
20.10.2010 - 3.11.2010
Ætlað fjármálastjórum og sérfræðingum í fjármálum í fyrirtækjum, opinberum stofnunum og fjármálafyrirtækjum. Ein. FLE: 5 Reikningsskil og fjármál.Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.
Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu: - ”Gott námskeið, hnitmiðað og markvisst”
- ”Fínt námskeið”
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Skattlagning við eftirgjöf á skuldum
Hvenær:
08.11.2010 - 8.11.2010
Ætlað löggiltum endurskoðendum, viðurkenndum bókurum og lögfræðingum. Námskeiðið hentar öllum sem starfa við bókhald og reikningsskil svo og þeim er starfa að skattframkvæmd eða láta sig skattamál varða í einni eða annarri mynd.
Fyrirlestrar fara fram á ensku. Skráningarfrestur er til 11. október 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|
 |
Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi
Hvenær:
10.11.2010 - 10.11.2010
Ætlað þeim sem eru að hefja atvinnurekstur eða eru að íhuga að breyta rekstrarformi fyrirtækis síns.
Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt. Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Skráningarfrestur er til 2. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar hér
|
|
|