Námsbrautir Endurmenntunar
Taktu skrefið - skapaðu þína eigin framtíð
Umsagnir frá nemendum Endurmenntunar
"Námið fór langt fram úr mínum væntingum. Kennarar voru úr fremstu röð íslenskra fræðimanna og mátti glögglega sjá að þar var valið af kostgæfni. Það var svo gaman að mér fannst slæmt að missa stundum úr tíma, en það kom ekki að sök því námið er líka kennt í fjarnámi."
Íris Sveinsdóttir, útskrifuð úr Leiðsögunámi á háskólastigi
"Eitt það besta við nám í Endurmenntun er að einungis er tekið fyrir eitt fag í einu og það klárað áður en næsta fag hefst. Ekki skemmir að andinn hjá Endurmenntun er frábær hvort sem er hjá nemendum eða starfsmönnum sem maður þarf að leita til. Get hiklaust mælt með þessu námi við alla."
Laufey Sigurðardóttir, útskrifuð úr Gæðastjórnun
"Eftir 25 ára starf á ýmsum stigum stjórnsýslunnar, innanlands og utan, var ég reynslunni ríkari en fannst mig vanta dýpri skilning á verkefnaumsýslu og stjórnun. Því greip ég fegins hendi tækifæri til að hefja diplómanám í Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun. Námið reyndist fyllilega standa undir væntingum og jók ekki bara þekkingu mína á verkefnastjórnun heldur veitti mér nýja sýn á önnur stjórnunartengd atriði. Ekki síst var hópvinnan dýrmæt því það er mjög lærdómsríkt að vinna að verkefnum utan eigin þægindaramma. Það sem kom mér mest á óvart voru krefjandi, en um leið mjög gefandi, áfangar í leiðtoga- og samskiptafærni. Námið hefur nú þegar nýst mér vel bæði í leik og starfi."
Ágúst Gísladóttir, útskrifuð úr Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun
"Námið reyndist afar skemmtilegt og fróðlegt en jafnframt krefjandi enda kennsluhættir þannig að nemendur vinna bæði raunhæf hópverkefni sem og einstaklingsverkefni í hverjum áfanga auk hefðbundinnar kennslu. Í verkefnavinnunni lærðu nemendur einnig hver af öðrum og mynduðust sterk tengsl innan nemendahópsins sem svo sannarlega eru verðmæti ekki síður en námið sjálft."
Guðrún Sverrirsdóttir, útskrifuð úr Þjónustustjórnun og Þekkingarmiðaðri þjónustustjórnun
"Með þessu námi eykur þú atvinnutækifæri þín og styrkir tengslanet. Mikil áhersla er lögð á að vera á tánum í stjórnun og stjórnendur helstu fyrirtækja flytja fyrirlestra þar sem námið er í miklum tengslum við atvinnulífið. Þar sem einnig er boðið upp á fjarnám þá ákvað ég að taka námið staðbundið og í fjarnámi. Ég átti greiðan aðgang að námsgögnum á netinu þar sem boðið er upp á að hlusta á fyrirlestra og vera í frábæru sambandi við kennara og starfsfólk."
Unnur Pálmarsdóttir, útskrifuð úr Mannauðsstjórnun