Fjölbreyttar og framúrskarandi námsbrautir sem veita sterkari stöðu í atvinnuleit og á vinnumarkaði.
Á tímabili sem spannar um aldarfjórðung hafa hátt á þriðja þúsund Íslendinga útskrifast frá fjölbreyttum námsbrautum Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Með þátttöku sinni í námsbrautum Endurmenntunar hafa einstaklingar verulega styrkt stöðu sína, dýpkað þekkingu sína og einnig hafa margir búið sig undir störf á nýjum vettvangi.
Námið er skipulagt þannig að hægt er að stunda það samhliða starfi. Verkefnin eru raunhæf og hagnýt enda iðulega sett í samhengi við þær áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir. Við þetta bætist að nemendur hafa mjög ólíkan bakgrunn og reynsluheim sem eykur til muna gildi námsins og felst þó ekki síður í hinu verðmæta tengslaneti sem skapast á meðan náminu stendur. Nemendahóparnir eru litlir sem stuðlar að sterku hópefli sem og persónulegri nánd og þjónustu kennara. Námið fer alla jafnan fram í lotum og yfirleitt lýkur hverri námsgrein með prófi eða verkefni áður en hin næsta hefst.
Stöðug þróun á sér stað, bæði hvað varðar inntak og áherslur í námsbrautum Endurmenntunar, en ekki síður í þjónustustigi sem hefur stöðugt hækkað í takt við auknar kröfur nemenda. Endurmenntun státar einnig af framúrskarandi kennurum úr deildum Háskóla Íslands og atvinnulífinu.
Bestu meðmæli með námi Endurmenntunar hljóta þó að koma frá nemendunum sjálfum. Umsögn nemanda.
Taktu skrefið - Skapaðu þína eigin framtíð
Námsráðgjafi Endurmenntunar er Kristín Birna Jónasdóttir og er hægt að panta hjá henni viðtalstíma og senda fyrirspurnir á nefangið namsradgjof@endurmenntun.is.