Hagnýtar upplýsingar fyrir nemendur


 


UGLAN


Uglan, kennsluvefur Endurmenntunar Háskóla Íslands, er upplýsingaveita og samskiptavettvangur kennara og nemenda. Upptökur af fyrirlestrum sem fara fram með eMission eru aðgengilegar beint frá kennsluvef.
Upplýsingar um hvernig hægt er að tengjast Uglunnu má finna hér

NÁMSRÁÐGJÖF


Hjá Endurmenntun starfar námsráðgjafi sem veitir ráðgjöf vegna námsvals og aðstoðar nemendur með sértæka námserfiðleika. Námsráðgjafi er einnig með námstækninámskeið í upphafi náms þar sem meðal annars er rætt um tímastjórnun, skipulagningu, próftækni, prófundirbúning og stjórnun prófkvíða.
Sjá nánari upplýsingar hér

FJARNÁM


Hægt er að sækja nokkrar námsbrautir Endurmenntunar í fjarnámi. Það eina sem þarf til að geta stundað fjarnám er tölva og nettenging. Fjarnámið er skipulagt þannig að fyrirlestrar eru teknir upp í gegnum Emission kerfi og þeir vistaðir á lokuðu heimasvæði námsins. Staðnemar og fjarnemar eru saman í hóp og fjarnemar geta því mætt í fyrirlestra ef þeir hafa möguleika á.
Nánari upplýsingar um fjarnám hjá Endurmenntun má fá með því að horfa á kynningarmynd á síðunni hér


EININGAKERFI


Hjá Endurmenntun er farið eftir ECTS einingakerfinu. ECTS stendur fyrir "European Credit Transfer and Accumulation System" og er notað sem staðall til þess að bera saman og meta námsárangur og frammistöðu nemenda. Námsmenn fá ákveðinn fjölda ECTS-eininga fyrir staðin fög og námsskeið. Eitt námsár jafngildir 60 ECTS-einingum, sem samsvara 1500-1800 klukkutímum í námi.
Sjá frekari upplýsingar um einingakerfið hér.


REGLUR OG STARFSHÆTTIR - PRÓFREGLUR


Hjá Endurmenntun gilda ýmsar reglur og starfshættir varðandi viðveru, einkunnir, kannanir, útskrift og próf.
Sjá nánari upplýsingar hér

GREIÐSLUKJÖR


Við upphaf náms er gefinn út reikningur fyrir heildarverði námsins.
Staðfestingargjald (50.000 krónur) dregst frá heildarverði og er óafturkræft.
Þeir sem ekki staðgreiða námið þurfa að semja um greiðslumáta áður en nám hefst. Hægt er að greiða með kortaláni til allt að 36 mánaða. Nemendum bjóðast einnig vaxtalaus kortalán til að hámarki 12 mánaða. Lántökukostnaður af slíkum lánum miðast við fjölda mánaða. Greiða þarf lántökukostnað af vaxtalausum lánum í heild sinni við undirritun lánasamnings.
Vinsamlega athugið að ekki er hægt að fá námsgjald fellt niður þótt nemandi hætti námi áður en námstíma lýkur.