Sálgæslufræði: Siðfræðileg álitamál og sálgæsla við lífslok

 

Í samstarfi við guðfræðideild, hugvísindadeild og Siðfræðistofnun HÍ.


Námskeiðið er einkum ætlað fólki með háskólapróf eða sambærilega menntun á sviði kirkjustarfs, heilsugæslu, kennslu, félagsþjónustu og löggæslu. Námskeiðið er 8 (ECTS) einingar á meistarastigi og má meta sem hluta af námi til MA prófs í guðfræði eða náms í starfstengdri siðfræði á vegum heimspekiskorar.

 

Fjallað er um siðfræðileg álitamál sem gjarnan vakna við meðferð deyjandi sjúklinga, svo sem hvenær réttlætanlegt sé að hefja ekki eða hætta meðferð, um rétt sjúklinga og aðstandenda til að hafna meðferð, um réttmæti líknardráps og um líknarmeðferð. Einnig er fjallað um álitamál varðandi skilmerki dauða og um líffæraflutninga. Áhersla er lögð á greiningu raunhæfra dæma og umræður um þau.

Kennsluaðferðir: Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnavinnu þar sem nemendur gera grein fyrir völdu efni.
Námsmat: Ritgerðir, verkefni, þátttaka í tímum auk 80% mætingar.

 

Nánari lýsing

 

  

Skráning

 

Kennsla / Umsjón:

Umsjón: Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar og Vilhjálmur Árnason, prófessor.
Fjölmargir gestakennarar koma að námskeiðinu m.a. Ástríður Stefánsdóttir, læknir og dósent, Gunnar Matthíasson, sjúkrahúsprestur, Ingileif Malmberg, sjúkrahúsprestur, Róbert H. Haraldsson, prófessor, Sigfinnur Þorleifsson, sjúkrahúsprestar, Sigurður Guðmundsson, landlæknir og Valgerður Sigurðardóttir, læknir.

 

 

Tímabil: 17.9.2010 - 19.11.2010

 

Hvenær: Kennt í sex lotum: dagsetningar koma síðar

 

Verð: 59.200 kr.

 

Greiðslufyrirkomulag:



Kennarar:

 


[Til baka]