Kynverund, siðfræði og samfélag (GFR603M)
Í samstarfi við guðfræði og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Námskeiðið er ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis- og uppeldisvísinda, s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.
Námskeiðið er metið til MA-prófs við guðfræði og trúarbragðafræðideild HÍ. Nemendur í öðrum deildum HÍ geta óskað eftir því hjá eigin deild að fá námskeiðið metið til eininga sem valnámskeið. Nemendur HÍ skrá sig á námskeiðið á heimasvæði sínu í Uglunni. Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda utan HÍ. Nemendur sem sækja um námskeiðið hjá EHÍ eru vinsamlega beðnir um að láta viðeigandi prófskírteini fylgja með umsókn.
Námskeiðslýsing: Hugmyndasöguleg, kynjafræðileg, menningarfræðileg og siðfræðileg nálgun einkennir að hluta til þetta námskeið. Þannig verður sjónum beint að því hvernig menning og samfélag mótar hugmyndir um kynverund og kynlíf og hvernig hugmyndir um kynferði og kyngervi fólks tengist þeim. Sjónarhorn hinsegin fræða verður beitt til að skoða þætti sem hafa áhrif á viðhorf til kynverundar og kynlífs. Sérstöku ljósi verður beint að siðfræði kynlífs. Fjallað verður um klám, kynferðislegt ofbeldi og vændi. Fjallað verður um hvernig trúarbrögð hafa mótað viðhorf til kynlífs. Þá verður fjallað um áhrif fjölmiðla á umræðuna um kynlíf. Fjallað verður um mannréttindi og minnihlutahópa í tengslum við kynverund.
Að loknu þessu námskeiði eiga nemendur að: - Hafa þekkingu á siðfræði kynlífs, í sögulegu jafnt sem samtímalegu ljósi
- Hafa þekkingu á fræðilegu sjónarhorni hinsegin fræða
- Hafa þekkingu á áhrifum trúarbragða á hugmyndir um kynverund mannsins
- Hafa færni til að meta á gagnrýninn og siðferðilegan hátt ólíka kynferðislega tjáningu
- Geta nýtt þekkingu sína og skilning á sviði kynfræði í þverfaglegu samhengi
- Hafa þróað með sér vinnubrögð í námi sem geri þeim kleift að takast á við frekara nám á sviðinu.
Hluti af meistaranámi í kynfræði Námskeiðið er hluti af námsleið í Kynfræði sem er þverfræðilegt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands í samstarfi þriggja deilda Háskóla Íslands, félagsráðgjafardeildar, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar. Hvert námskeið er sjálfstætt og hægt að taka stakt námskeið en öll saman geta þau myndað séráherslu í meistaranámi samkvæmt reglum hverrar deildar. Námsleiðin samanstendur af þremur námskeiðum á sérsviði kynfræða sem hvert um sig er metið til 10 ECTS eininga á meistarastigi. Námskeiðin eru: - Kroppurinn, kynlíf og kynheilsa, - Kynverund, siðfræði og samfélag - Kynlíf og samtími.
Nánari upplýsingar um námsleiðina er á slóðinni: Þverfræðilegt nám í kynfræði (Sexology) 30 ECTS
Umsjónarkennari: Sólveig Anna Bóasdóttir er dósent í guðfræðilegri siðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í siðfræði frá Uppsala Háskóla 1998 og starfaði sem lektor í siðfræði við sömu stofnun frá 1998 - 2001. Frá 2003 var hún stundakennari í siðfræði við guðfræði- og trúarbragðafræðideild H.Í. en fastráðin frá 2008. Rannsóknir Sólveigar í siðfræði hafa beinst að hjónabands- og fjölskyldusiðfræði, réttindum samkynhneigða til að ganga í hjónaband svo og tengslum kristinnar trúar og ofbeldis í hjónaböndum. Bók hennar um þessi efni, Ást, kynlíf og hjónaband, kom út 2008.
|
|
Skráningu í þetta námskeið er lokið
Kennsla / Umsjón:
Sólveig A. Bóasdóttir, dósent
Tímabil: 13.9.2010 - 29.11.2010
Hvenær: Mán. 13. sept. - 11. okt. og 1. nóv. - 29. nóv. kl. 16:15-19:00 (10x). Ekki er kennt mán. 18. og 25. okt. Kennt er í Aðabyggingu HÍ - stofa 231.
Verð: 59.000 kr.
Greiðslufyrirkomulag:
Kennarar:
|