Fjármálatölfræði (HAG110F)

 

Í samstarfi við hagfræðideild Háskóla


Námskeið í viðskiptafræði eru á framhaldsstigi og jafngilda námskeiðum á meistarastigi við hagfræðideild Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs við hagfræðideild HÍ sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun HÍ sér um skráningar. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með.
Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.

 

Á námskeiðinu verður fjallað um helstu tölfræðiaðferðir sem beitt er til greiningar á gögnum af fjármálamörkuðum og lögð áhersla á að kenna og þjálfa nemendur í aðferðum sem beitt er á raunveruleg, hagnýt verkefni. Helstu efnisatriði: Spálíkön fyrir gengisþróun (ARMA, VAR) og flökti (ARCH, GARCH), verðlagning og ahættuvörn afleiða, eignastýring (þáttalíkön, CAPM), og langtímasambönd í fjármálum (sístæðni, einingarætur, samþætting). Helstu aðferðir: Aðferð minnstu kvaðrata, sennileikaföll, Kalman síun, höfuðásagreining, vægjaaðferð, samþætting, og hermun.

Sjá kennsluskrá hér:

Kennsluskrá HÍ

Sjá stundaskrá hér:

Stundaskrá HÍ

 

  

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

Kennsla / Umsjón:

Hersir Sigurgeirsson, lektor

 

 

Tímabil: 3.9.2010 -

 

Hvenær: Stundatöflur eru á vegum viðkomandi deildar og eru birtar í ágúst. Sjá nánar á heimasíðu hagfræðideildar undir stundatöflur.

 

Verð: 97.000 kr.

 

Greiðslufyrirkomulag:



Kennarar:

 


[Til baka]