Inngangur að stjórnun og rekstri félagasamtaka (FRG019F)

Hvenær: 07.09.2010 - 30.11.2010

Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands


Námskeið í félagsráðgjöf eru á framhaldsstigi og jafngilda námskeiðum á meistarastigi við félagsráðgjafardeild HÍ. Þau má því fá metin til MS-prófs við félagsráðgjafardeild sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun HÍ sér um skráningar nemenda utan HÍ. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með.

Umsóknarfrestur er til 16. ágúst.

Nánari upplýsingar hér 

 


Barnavernd: Vinnulag og samstarf

Hvenær: 23.09.2010 - 26.11.2010

Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands


Markmið námsins er að efla fræðilega og faglega þekkingu þátttakenda á einkennum og afleiðingum vanrækslu og ofbeldis á börn, starfsháttum barnaverndarnefnda og þeim úrræðum sem þær geta veitt börnum og fjölskyldum þeirra. Lögð verður áhersla á að kynna þau lög sem unnið er eftir og samstarf barnaverndarnefnda við aðra sem sinna málefnum barna.

Námskeiðið er hægt að taka í fjarnámi. Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 2010

Námskeiðið er einnig hægt að taka án meistaranámseininga. Sjá frekari upplýsingar hér

Nánari upplýsingar hér 

 


Samtími og kynlíf - VOR 2011

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.


Námskeiðið er ætlað fagfólki innan félags-, heilbrigðis- og uppeldisvísinda, s.s. félagsráðgjöfum, félagsfræðingum, guðfræðingum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, læknum, kynjafræðingum, mannfræðingum, kennurum og sálfræðingum.

Nánari upplýsingar hér