Sjá upplýsingar um meistaranám í verkefnastjórnun hér: MPM
Neðangreind námskeið jafngilda námskeiðum á meistarastigi við deildir Háskóla Íslands. Þau má því fá metin til MS-prófs hjá viðkomandi deild sem sér jafnframt um faglega stjórnun námskeiðanna en Endurmenntun sér um skráningar nemenda í stök námskeið á meistarastigi. Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði og láti viðeigandi prófskírteini fylgja með.
Þeir nemendur sem sækja um námskeið hjá Endurmenntun sækja sömu námskeið og þeir nemendur sem skráðir eru í meistaranám við Háskóla Íslands. Kennsla fer að öllu jöfnu fram á dagtíma en nánari upplýsingar um hvert og eitt námskeið er að finna í kennsluskrá Háskóla Íslands: Sjá hér.
Stundarskrár eru á vegum viðkomandi deilda. Sjá slóðir til upplýsingasíðna fyrir hvert námskeið, en þau má nálgast gegnum síðurnar sem vísað er á hér að neðan fyrir hverja deild Háskóla Íslands sem námskeið eru haldin í samstarfi við.
Námskeið í samstarfi við læknadeild
Námskeið í samstarfi við hagfræðideild
Námskeið í samstarfi við viðskiptafræðideild
Námskeið í samstarfi við hjúkrunarfræðideild
Námskeið í samstarfið við guðfræði- og trúarbragðafræðideild
Námskeið í samstarfið við félagsráðgjafardeild
Námskeið í samstarfið við kennaradeild