Úthlutunarreglur og styrkir



Umsóknareyðublað fyrir styrki (WORD - 250k) (PDF - 46k)



Umsóknir um einstaklingsstyrki og styrki til námskeiðshalds

Afgreiðsla umsókna verður tvisvar á ári og verður þá fjallað um umsóknir óháð tímasetningu námskeiða.

Umsóknarfrestur rennur út 30. apríl og 31. október. Berist umsókn of seint verður hún tekin fyrir við næstu úthlutun. Hægt er að sækja um styrki vegna námskeiða eftir á, þó mega ekki vera liðnir meira en 12 mánuðir frá því að námskeið var sótt.

Allar umsóknir eru afgreiddar á fundi fljótlega eftir að umsóknarfrestur rennur út og fá umsækjendur svar bréfleiðis. Mikilvægt er að vanda til umsóknar og ef hægt er , senda nauðsynleg fylgigögn (t.d. staðfestingar eða afrit kvittana) til að flýta fyrir afgreiðslu.

Einstaklingsstyrkir

Einstaklingar geta sótt um styrk til að sækja námskeið önnur en hin skipulögðu sumarnámskeið fagfélaganna. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að námskeiðið sé annaðhvort á sviði kennslugreinar viðkomandi eða kennslufræðilegs eðlis. Námskeið sem eru almenns eðlis eða almenn tölvunámskeið eru ekki styrkt af samstarfsnefndinni.


Styrkur getur numið allt að 40.000 kr.  Framhaldsskólakennarar eiga rétt á einum einstaklingsstyrk á hverju almanaksári. Kennarar leggja sjálfir út fyrir kostnaði en geta síðan snúið sér til Kristínar Jónsdóttur hjá Endurmenntunar HÍ með greiðslukvittun og afrit af þátttöku- eða prófskírteini.



Ráðstefnustyrkir fagfélaga

Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara sér um að afgreiða beiðnir um ráðstefnustyrki frá fagfélögum framhaldsskólakennara fyrir hönd menntamálaráðuneytis.


Fagfélög geta sótt um styrki til að senda einn fulltrúa á ári á vegum félagsins á ráðstefnu eða fund erlendis. Stjórn fagfélags skal sækja um styrkinn. Umsókninni skal fylgja dagskrá ráðstefnunnar og áætlun um heildarkostnað.


Styrkupphæð

Samstarfsnefnd metur umsóknir. Styrkupphæð getur verið sem svarar hagkvæmasta flugfargjaldi og hluta ráðstefnugjalds. Endurmenntun sendir skriflegt svar til formanns fagfélags. Styrkupphæð er 70.000 kr. innan Evrópu, utan Evrópu 100.000 kr.


Greinargerð

Sá sem fer á ráðstefnu fyrir hönd fagfélags gerir grein fyrir innihaldi eða helstu niðurstöðum ráðstefnunnar á fundi eða í málgagni félagsins að ráðstefnu lokinni.


Umsóknir sendist til Huldu Mjallar Hauksdóttur hjá Endurmenntun HÍ, netfang hulda@hi.is


Gestafyrirlesarar

Skólar, kennarafélög og fagfélög eiga þess kost að sækja um styrki til fyrirlestrarhalds á fundum eða ráðstefnum á sínum vegum. Um er að ræða greiðslu fyrir eins til tveggja tíma fyrirlestra, auk ferðakostnaðar að hluta eða að öllu leyti, ef við á. Umsókn skal senda til Huldu Mjallar Hauksdóttur hjá Endurmenntun HÍ, netfang hulda@hi.is.


Tímasetning er samkomulagsatriði milli fyrirlesara og þeirra er standa að framkvæmdinni.


Upphæð styrkja fylgir gjaldskrá Endurmenntunar Háskóla Íslands.



Námskeið í skólum

Skólar geta sótt um styrki til að halda námskeið fyrir kennara skólans. Umsóknir sendist til Huldu Mjallar Hauksdóttur hjá Endurmenntun HÍ, netfang hulda@hi.is



Aðrir styrkir


Styrkir sem menntamálaráðuneytið úthlutar

Styrkir til námsefnisgerðar á framhaldsskólastigi


Styrkir til þróunarverkefna í framhaldsskólum og fullorðinsfræðslu


Námsorlof framhaldsskólakennara


Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu – sérstök fjárveiting danska ríkisins.


Styrkir til faggreinafélaga á framhaldsskólastigi


Upplýsingar um styrki sem veittir eru af menntamálaráðuneytinu er að finna á heimasíðu ráðuneytisins: www.menntamalaraduneyti.is/sjodir-og-eydublod/.


Einnig er hægt að fá upplýsingar á vef Menntagáttar: www.menntagatt.is.


Vísindasjóður Félags framhaldsskólakennara

Markmið sjóðsins er að auka tækifæri félagsmanna til framhaldsmenntunar, endurmenntunar, rannsókna og þróunarstarfa.


Nánari upplýsingar og eyðublað má finna á heimasíðu Kennarasambandsins: www.ki.is.


Styrkir á vegum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins

Sókrates-menntaáætlunin ESB - Comenius-styrkir til endurmenntunar kennara


Námskeið í Evrópu, starfsþjálfun og endurmenntun fyrir kennara og aðra sem tengjast kennslustörfum. Styrkir til að sækja ráðstefnur, skólasamstarfsverkefni, skólaþróunarverkefni og nemendaskipti.


Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Alþjóðaskrifstofunnar: www.ask.hi.is/page/askuppl.


Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunin

Kennarar í starfsmenntaskólum geta sótt um styrki til starsþjálfunar í öðru Evrópulandi í 1-6 vikur.


Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Landsskrifstofu Leonardo: www.leonardo.is.