Sjálfbærni fyrir alla framhaldsskólakennara - með Kristínu Völu Ragnarsdóttur -

Námskeiðið er opið öllum starfandi framhaldsskólakennurum. Hámarksfjöldi þátttakenda er 90.

 

Markmið námskeiðsins er að kennarar verði meðvitaðir um mikilvægi sjálfbærni sem er ein af fimm grunnstoðunum í nýrri námskrá framhaldsskóla.

Menntamálaráðuneytið leggur áherslu á að við útfærslu markmiðsgreina nýrra laga um leik-, grunn- og framhaldsskóla sé horft til fimm grunnþátta sem einkenna eigi allt skólastarf og ganga þvert á námsbrautir. Menntun til sjálfbærni er einn þessara þátta (hinir eru læsi í víðum skilningi, lýðræði, jafnrétti og skapandi skólastarf).

Á námskeiðinu mun Kristín Vala Ragnarsdóttir (ásamt öðrum) gera grein fyrir hver umhverfisvandamál heimsins eru nú. Þá skilgreinir hún hvað sjálfbærnihugtakið felur í sér, hvaða stöplar eru mikilvægastir, hvernig þeir eru tengdir, hvers vegna kerfishugsun er lykilatriði, hvað einstaklingar geta gert og hverju breyta þarf til þess að við verðum sjálfbær á alheimsvísu. Einnig mun hún huga að stefnu til sjálfbærni fyrir skóla, bæjarfélög og Ísland í heild sinni - og hvernig sjálfbærni getur verið grunnþáttur í allri kennslu.

Ítarefni fyrir áhugasama:

Grunnhugsun um sjálfbærni:
Stibbe A., ed.(2009) The Handbook of Sustainability Literacy. Skills for a Changing World. Green Books, Dartington.
Bókin fæst í Bóksölu stúdenta.
Takið eftir að Arran Stibbe mun flytja fyrirlestur við Háskóla Íslands föstudaginn 16. apríl kl 12:20. Nánari upplýsingar á forsíðu HÍ www.hi.is

Fyrir grunnskóla - en samt mjög nytsamlegt:
The Vermont Guide to Education for Sustainability. Vermont Education for Sustainability.
Smelltu hér
Smelltu hér

Fyrir framhaldsskóla:
Education for Change: A Handbook for Teaching and Learning Sustainable Development. Baltic University Programme Uppsala University.
Smelltu hér

Kerfishugsun:
Systems Thinking for Schools. A Waters Foundation Project.
Smelltu hér
Smelltu hér

Skólar og sköpun:
Sir Ken Robinson - sköpun -
Smelltu hér

Skólar á grænni grein - góð fyrstu spor fyrir skóla:
Smelltu hér

 

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

  

Skráningu í þetta námskeið er lokið

 

Kennsla / umsjón:

Kennari: Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði - og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands


Hvenær:

15. og 16. júní 2010, kl: 9:00 - 14:00

 

 

Verð: Nánar auglýst síðar.

 

[Til baka]